Mikið var um að vera hjá Einhverfusamtökunum þann 3. desember

Í gær, á alþjóðlegum degi fatlaðs fólks, hlutu Einhverfusamtökin Múrbrjót Landssamtakanna Þroskahjálpar vegna framlags í þágu mannréttinda fatlaðs fólks og jafnra tækifæra fyrir heimildarmyndina „Að sjá hið ósýnilega“. Einnig hlutu samtökin Hvatningarverðlaun Öryrkjabandalags Íslands í flokki aðildarfélaga fyrir sömu mynd. Viljum við þakka kvikmyndagerðarfólkinu Bjarney Lúðvíksdóttur og Kristjáni Kristjánssyni fyrir einstaklega fallega mynd, ritnefndin fær þakkir fyrir vel unnin störf en sérstakar þakkir fá einhverfu konurnar 17 sem fram komu og sögðu sögur sínar. Það þarf mikið hugrekki til að stíga fram og fjalla um jafn viðkvæm málefni og gert var í myndinni.

Jólafundur Einhverfusamtakanna var einnig haldinn í gær þar sem Valgeir Bjarnason og Ingibjörg Elsa Björnsdóttir héldu fyrirlestur um hjónaband sitt og hvernig er að lifa við einhverfu og ýmislegt annað. Um sigra og ósigra, ástina og lífið. Góð mæting var og mikil ánægja með fyrirlesturinn. Þökkum við þeim kærlega fyrir.