Fögnum alþjóðlegum degi einhverfu 2. apríl með öllum regnbogans litum.

Í tilefni af alþjóðlegum degi einhverfu 2. apríl, fögnum við fjölbreytileika einhverfurófsins með öllum regnbogans litum. Einhverft fólk er allskonar, rétt eins og annað fólk og hefur einhverfusamfélagið valið sér eilífðarmerkið í regnbogalitunum, til að tákna óendanlega fjölbreytni hópsins.  

Í aprílmánuði munu Einhverfusamtökin standa fyrir listsýningu í Hamrinum - ungmennahúsi í Hafnarfirði, helgina 13.-14. apríl. Þar mun einhverft listafólk sýna verk sín og flytja tónlist, ljóð o.fl. Þetta er þriðja árið í röð sem við stöndum fyrir slíkri sýningu og hefur mikil ánægja verið með framtakið. Um 300 manns mættu á sýninguna í fyrra.

Bókin „Öðruvísi, ekki síðri“ eftir Chloé Hayden kemur út í íslenskri þýðingu um mánaðarmótin og munum við kynna bókina í Hamrinum helgina 13.-14. apríl. Chloé lýsir bókinni sinni sem því sem hún, þá 13 ára gömul, hefði þurft að fá í hendurnar til að skilja líf sitt og hvað það þýðir að vera einhverf. Er það almennt mat einhverfra sem lesa bókina að þessi lýsing standi undir nafni. Bókin er skýr og skorinorð, skemmtilega skrifuð, og síðast en ekki síst gríðarlega góð handbók um flest ef ekki allt sem snýr að einhverfu. Forlagið gefur bókina út en Einhverfusamtökin og Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið kosta þýðinguna.