Hugsuðir - unglingahópur

Kæru Hugsuðir! 
 
Næsta þriðjudag, þann 19. nóvember kl. 17:30, ætlum við að skella okkur saman í Klifurhúsið (Ármúla 23)! Við byrjum á að fá smá kennslu í klifri og svo fáum við að klifra í klukkutíma, Þetta verður því aðeins styttri tími en venjulega en við verðum líklega búin um eða upp úr kl. 18:30. Þetta kostar 1000 kr. á mann og hver og einn borgar fyrir sig.
Við hvetjum alla til að mæta, líka þá sem hafa aldrei klifrað áður.
 
Hlökkum til að sjá ykkur!
 
Margrét, Thelma, Hildur, Jimmy og Aron.