Hugsuðir, unglingahópur

Kæru Hugsuðir! 

Þann 23. apríl kl. 17:30-18:45 ætlum við að skella okkur í Klifurhúsið (Ármúla 23)! Fyrir aðeins 800 kr. fáum við að klifra í ca klukkustund. Hver og einn borgar fyrir sig. Fyrst fáum við kynningu og leiðbeiningar og klifrum svo. Þetta verður því aðeins styttri tími hjá okkur en venjulega en örugglega mjög skemmtilegur 

Við hvetjum sem flesta til að koma og klifra, jafnvel þó þið hafið ekki prófað það áður!

Bestu kveðjur,
Margrét, Thelma, Hildur, Aron og Jimmy.