Hugsuðir, unglingahópur

Kæru Hugsuðir! 

Þá er komið að síðasta tímanum okkar saman á þessu ári! Hann verður þriðjudaginn 18. desember á okkar venjulega tíma, 17:30-19:30.

ATH: Það er verið að gera við húsnæði Tónabæjar en við erum svo heppin að fá að vera í félagsmiðstöðinni Þróttheimum (Holtavegi 11, 104 Rvk) meðan viðgerðir standa yfir. 

Líkt og undanfarin ár ætlum við að hafa pakkaleik en þeir sem vilja taka þátt í honum koma með lítinn pakka (sem kostar í mesta lagi 1500 kr.). Við hvetjum alla til að taka þátt en það er auðvitað ekki skylda. 
Annars munum við spila saman, hlusta á jólatónlist og boðið verður upp á jólaöl, jólanammi og annað jólagotterí.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest! Við þá sem komast ekki segjum við gleðileg jól og takk fyrir frábæran tíma sem við höfum átt saman í haust.
Við munum senda póst með viku fyrirvara um hvenær við byrjum aftur í janúar. 

-Margrét, Thelma, Hildur, Anita og Aron.