Út úr skelinni - Hópur fullorðinna einstaklinga á einhverfurófi

Fundur hjá hópnum Út úr skelinni verður haldinn sunnudaginn 26.
febrúar, kl. 15:15 - 17:15 á Háaleitisbraut 13, í fundarsal á 4. hæð. 

Lífseflingarhópurinn (empowerment-hópurinn) "Út úr skelinni" var stofnaður fyrir 8 árum eftir sænskri fyrirmynd.

Hópurinn hittist hálfsmánaðarlega og nýtur stuðnings ráðgjafa sem hafa mikla þekkingu á einhverfurófsröskunum.