Hugsuðir, unglingahópur

Halló Halló

Síðasti tími ársins verður þriðjudaginn 13. desember kl. 17.30-19.30 í Tónabæ. Við ætlum að hittast, hafa það gaman og eiga góða „jóla“stund saman. Boðið verður upp á dýrindis kræsingar s.s. jólasúkkulaði, smákökur, nammi o.fl. Þeir sem vilja geta svo hjálpað til við að baka örlítið og svo verður hægt að skreyta piparkökur.

Einnig er ætlunin að hafa pakkaleik og þarf hver og einn að koma með gjöf sem kostar um 500-1000 kr.

Hlökkum til að sjá ykkur í hátíðarskapi!

Bestu kveðjur,
Linda, Daðey, Ingibjörg, Hildur og Margrét