| Atriðaskrá greina |
|---|
| Skólakerfið |
| Leikskólar |
| Grunnskólar |
| Sérdeildir fyrir einhverfa í grunnskólum |
| Framhaldsskólar |
| Frístundaheimili og frístundaklúbbar í Reykjavík |
| Allar síður |
Frístundaheimili og frístundaklúbbar fyrir börn og unglinga í Reykjavík:
Frístundaheimili er starfrækt við alla grunnskóla Reykjavíkurborgar. Þau bjóða upp á fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6-9 ára barna lýkur. Frístundamiðstöðvar er í forsvari fyrir starfið í hverju hverfi nema á Kjalarnesi, Úlfarsárdal, Ártúnsholti og Norðlingaholti. Þar sjá skólarnir sjálfir, Klébergsskóli og Dalskóli, Norðlingaskóli og Ártúnsskóli um rekstur frístundaheimilanna.
Þjónusta við börn með sérþarfir er skipulögð í hverju frístundaheimili fyrir sig í samvinnu við foreldra, skóla og aðra fagaðila er tengjast börnunum.
Sótt er um dvöl á frístundaheimili á rafrænu formi í Rafrænni Reykjavík.
Fjórir frístundaklúbbar eru í borginni fyrir börn og unglinga með fötlun á aldrinum 10-16 ára.
Klúbbarnir eru opnir eftir að skóladegi lýkur til kl. 17:00 alla virka daga. Þeir eru einnig opnir kl. 8:00-17:00 í öllum skólafríum fyrir utan vetrarfrí en þá eru þeir lokaðir. Opið er allan daginn í páska-, jóla- og sumarfríum og á starfsdögum og foreldraviðtalsdögum skólanna. Frístundaklúbbarnir sækja börnin í skólana þegar skóladegi líkur.
Meginmarkmið með starfinu er að bjóða upp á fjölbreytt og spennandi frístundatilboð þar sem uppeldisgildi frítímans eru höfð að leiðarljósi.
Stefnt er að því að tengja þetta starf öðrum tilboðum sem þessum aldurshópi býðst í hverfunum.
Frístundamiðstöðin Kringlumýri er þekkingarmiðstöð í málefnum barna og unglinga með fötlun.
Deildarstjóri frítímastarfs fatlaðra barna er Katrín Þórdís Jacobsen. Sími hennar er 411 5404.
Hægt er að sækja um dvöl í frístundaklúbbi í Rafrænni Reykjavík
Yfirlit yfir frístundaklúbbana í borginni:
Frístundaklúbburinn Hofið sem þjónustar börn og unglinga úr almennum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu vestan Elliðaáa.
Sólheimum 35, 104 Reykjavík
Auður Kvaran, gsm: 664 7774
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
www.kringlumyri.is/hofid
Frístundaklúbburinn Garður sem þjónustar 10-12 ára börn úr Klettaskóla
Vesturhlíð 3, 105 Reykjavík
Ólöf Haflína Ingólfsdóttir, s: 411-5441, gsm: 695-5143
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
www.kringlumyri.is/gardur
Frístundaklúbburinn Höllinn í Grafarvogi sem þjónustar börn og unglinga í Grafarvogi og Grafarholti.
Egilshöll, 112 Reykjavik
Ásdís Sigurjónsdóttir, s: 520-2300, gsm: 695-5189
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
www.gufunes.is/hollin
Frístundaklúbburinn Hellirinn í Breiðholti sem þjónustar börn og unglinga í Árbæ, Norðlingaholti og Breiðholti.
Kleifarseli 18, 109 Reykjavík
Eiður Ottó Bjarnarson, s: 411-5750, gsm: 6955135
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
www.midberg.is/hellirinn


