Hér eru upplýsingar um ýmis félög og hópa sem koma að málefnum einhverfra barna.
Specialisterne
Sérfræðingarnir ses. er sjálfseignarstofnun sem var stofnuð í ársbyrjun 2010 af Umsjónarfélagi einhverfra og sjö einstaklingum. Gera má ráð fyrir að á Íslandi sé á bilinu 2.000 - 3.000 einstaklinga á einhverfurófi, um 1.000 hafa fengið formlega greiningu. Ekki hefur verið til úrræði á Íslandi sem sérhæfir sig í þjónustu við atvinnustuðningi við þennan hóp. Of margir einstaklingar eru því atvinnulausir eða í störfum þar sem starfsgeta þeirra nýtist illa.
Markmið félagsins er að koma af stað starfsemi í samstarfi við Specialisterne í Danmörku. Specialisterne hafa vakið heimsathygli við nálgun á atvinnuþáttöku einstaklinga á einhverfurófi, en litið er sérstaklega til styrkleika þeirra og síðan er fyrirtækið rekið á samkeppnismarkaði. Verði hagnaður af rekstri Sérfræðinganna ses. rennur hann allur til þess að bæta atvinnumál einstaklinga á einhverfurófi á Íslandi.
Markmið Sérfræðingana ses. er að meta og þjálfa 14 - 18 einstaklinga á einhverfurófinu á ári og veita um helming þeirra atvinnu við fjölbreytt störf, hugbúnaðarprófanir, skráningarstörf og önnur störf þar sem krafist er nákvæmni og styrkleikar þeirra nýtast.
Texti af heimasíðu Specialisterne:
Tölvumiðstöð
Verkefni Tölvumiðstöðvarinnar eru mörg og hafa farið vaxandi á undanförnum árum í takt við aukna tölvunotkun almennt.
Þjónustuna má flokka í fjóra megin þætti:
- Ráðgjöf sem felur í sér mat á þörf fyrir tölvubúnað, val á búnaði, prófun og leiðsögn í notkun búnaðar. Ráðgjöfin er einstaklingsmiðuð og unnin í samvinnu við aðila úr nánasta umhverfi skjólstæðings.
- Ráðgjöf til hópa s.s. kennara, iðjuþjálfa, þroskaþjálfa, foreldra og fatlaða einstaklinga þar sem fram fer kynning á lausnum og eða kennsla í að nota ákveðinn búnað og forrit sem nýst getur tilteknum hópi. Sífellt fleiri hópar telja það eðlilegan þátt í starfsemi sinni að leita reglulega til Tölvumiðstöðvar um ráðgjöf.
- Námskeið og upplýsingamiðlun. Tölvumiðstöðin leitast við að fylgjast vel með nýjungum í tækni, notkun og aðferðum. Haldin eru námskeið reglulega þar sem upplýsingum er miðlað, leiðbeint og hvatt til notkunar með það að leiðarljósi að búnaður komi að sem bestum notum. Fræðslufundir og námskeið eru vaxandi þáttur í starfsemi miðstöðvarinnar.
- Tengslahlutverk, samþætting. Tölvuvæðing og tölvunotkun hefur stóraukist á undanförnum árum. Samráð og upplýsingastreymi milli aðila verður því sífellt mikilvægara. Tölvumiðstöðin leggur áherslu á að aðilar sem tengjast einstökum málum vinni saman að settu marki og að samræming sé milli aðgerða. Hvatning og leiðsögn varðandi það hvernig búnaður og forrit nýtist einstaklingi sem best þarf að vera stöðugt vakandi ferli.
Texti af heimasíðu Tölvumiðstöðvar:
Sjónarhóll
Að Sjónarhóli- ráðgjafarmiðstöð ses. standa eftirfarandi samtök:
- ADHD samtökin
- Landssamtökin Þroskahjálp
- Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
- Umhyggja, félag til stuðnings langveikum börnum.
Með stofnun Sjónarhóls rættist margra ára draumur um faglega og óháða ráðgjöf fyrir aðstandendur barna sem eiga við langvarandi veikindi og fötlun að stríða.
Sjónarhóll er miðpunktur þjónustu á þessu sviði, þekkingartorg þar sem hægt er að finna á einum stað yfirgripsmikla vitneskju og reynslu sem hingað til hefur verið dreifð um borg og bæi.
Sjónarhóll er umboðsmaður fjölskyldna barna með sérþarfir:
- hann gætir að réttindum þeirra,
- eflir möguleika þeirra og
- veitir leiðsögn á leið til betra lífs.
Texti af heimasíðu Sjónarhóls:
Systkinasmiðjan
Markmið smiðjunnar eru:
- að veita systkinum barna með sérþarfir tækifæri til að hitta önnur systkini í skipulögðu og skemmtilegu umhverfi.
- að veita börnunum tækifæri til að ræða við jafnaldra sína á jákvæðan hátt um margt sem tengist því að eiga systkini með sérþarfir.
- að veita börnunum innsýn í það hvernig megi takast á við þær margbreytilegu aðstæður sem fylgja því að eiga systkini með sérþarfir.
- að veita börnunum tækifæri til að læra meira um fötlun eða veikindi systkina sinna.
- að veita foreldrum og fagfólki tækifæri til að kynnast því hvernig það er í raun og veru að alast upp með fötluðu eða veiku systkini, þ.e. þeirri sérstöku áskorun að alast upp við slíkar aðstæður.
Í Systkinasmiðjunni vinnum við fyrst og fremst út frá fyrrgreindum markmiðum.
Við leysum saman ýmis verkefni, ræðum um stöðu okkar innan fjölskyldunnar, skólans og meðal vina. Við ræðum um hvernig við leysum úr erfiðleikum sem verða á vegi okkar, meðal annars vegna systkina okkar og margt fleira.
Þessa þætti nálgumst við meðal annarra í gegnum ýmsa skemmtilega leiki og reynum að fá til liðs við okkur ýmsa aðila sem hafa kynnst þessu af eigin raun.
Það sem skiptir meginmáli er að hvert og eitt barn fái að njóta sín sem best og tjái sig á þann hátt sem því hentar best.
Texti af heimasíðu Systkinasmiðjunnar:
Vinun - liðveisla
Vinun býður persónumiðaða heimaþjónustu sem tekur mið af einstaklingnum sjálfum og þörfum hans.
Þörf er á auknu vali um þjónustu í íslensku samfélagi og Vinun er svar við þeirri þörf. Reynslan sýnir okkur að fólk kann að meta þau lífsgæði sem aukast þegar heimaþjónusta Vinunar er fyrir hendi.
Texti af heimasíðu Vinunar:
Einhverfuráðgjöfin ÁS
Einhverfuráðgjöfin ÁS er sérkennslufræðileg ráðgjafarþjónusta. Boðið er upp á ráðgjöf til skóla, stofnana og einstaklinga vegna fólks með einhverfu, Aspergersheilkenni og skyldar fatlanir. Þá er boðið upp á námskeið og fyrirlestra og ákveðna kennslufræðilega greiningarvinnu. Þær Ásgerður Ólafsdóttir og Sigrún Hjartardóttir stofnuðu ÁS árið 2001 og nú á 10 ára afmælinu bætist Áslaug Melax í hópinn. Allar hafa þær langa reynslu af kennslu, ráðgjöf og námskeiðahaldi vegna nemenda með einhverfu og Aspergersheilkenni.
Texti af heimasíðu einhverfuráðgjafarinnar:
Ylfa - Nærþjónusta og ráðgjöf
Markmið Ylfu ehf. er að veita sveigjanlega notendastýrða persónulega aðstoð og sveigjanlega þjónustu fyrir fólk með fötlun og fjölskyldur þeirra. Þjónustu sem leitast við að einstaklingurinn njóti sín til fulls í þátttöku í samfélaginu á eigin forsendum. Að koma að nýsköpun, auka val, fjölbreyttni og áhrif viðskiptavina á þjónustuna.
Við leggjum metnað í að efla og bæta lífsgæði fólks með fötlun og fjölskyldna þeirra.
Hugmyndafræðin sem liggur að baki þjónustunnar er að efla sjálfstætt líf einstaklingsins, að hann stjórni sínu lífi á þann hátt sem hann kýs.
Grunnhugmyndin að þjónustu er brotin niður í fjóra þjónustuþætti sem eru: NPA notendastýrð persónuleg aðstoð, ráðgjöf, nærþjónusta, fræðsla og stuðningshópar.
Ylfa ehf. veitir þjónustu um land allt.
Texti af heimasíðu Ylfu:
Landssamtökun Þroskahjálp
voru stofnuð haustið 1976 í því skyni að sameina þau félög, sem vinna að málefnum fatlaðra, með það að markmiði að tryggja þeim fullt jafnrétti á við aðra þjóðfélagsþegna.
Aðildarfélög Þroskahjálpar eru 22 talsins og eru þau foreldra- og styrktarfélög, svo og fagfélög fólks sem hefur sérhæft sig í þjálfun og þjónustu við fatlaða. Félögin eru starfrækt um allt land og eru félagsmenn þeirra sex þúsund.
Baráttan fyrir málefnum fatlaðra
Landssamtökin Þroskahjálp hafa frá upphafi lagt höfuðáherslu á að málefni fatlaðra séu málefni samfélagsins alls og að unnið skuli að þeim í samráði við þá sem hagsmuna eiga að gæta. Samtökin eiga því bæði samstarf við stjórnvöld um málefni fatlaðra og berjast fyrir rétti þeirra. Þannig er leitast við að hafa mótandi áhrif á allar aðgerðir, sem stjórnvöld hafa forystu um, með það að leiðarljósi að fatlaðir njóti í hvívetna sama réttar og sömu aðstöðu og aðrir landsmenn. Árangur þessa starfs er ótvíræður og má í því sambandi nefna löggjöf um aðstoð við þroskahefta 1979 og heildarlöggjöf um málefni fatlaðra sem tók gildi 1. janúar 1984. Ennfremur endurskoðun þeirra laga sem öðluðust gildi 1. september 1992. Íslenskt samfélag á enn talsvert í land með að tryggja fötluðum viðunandi aðstoð og jafnrétti í raun.
Texti af vefsíðu Þroskahjálpar:
Öryrkjabandalag Íslands
Hlutverk ÖBÍ er:
- að vinna að samfélagslegu réttlæti og bættum lífsgæðum og kjörum óháð líkamlegu eða andlegu atgervi einstaklinga,
- að vera stefnumótandi í réttindamálum fatlaðra, málsvari og frumkvöðull í málefnum þeirra,
- að vera þekkingarmiðstöð um málefni fatlaðra og ráðgjafi og stoð aðildarfélaganna.
Texti af heimasíðu Öryrkjabandalagsins:
Einhugur - foreldrafélag Eyjabarna á einhverfurófinu
Við bloggum til að..
- segja heiminum hvað við eigum frábær og skemmtileg börn
- til að útskýra hversu nauðsynlegt það er þeim að fá þá þjónustu sem þarfir þeirra krefjast til að þau fái að blómstra sem einstaklingar í samfélaginu okkar
- til að vera stuðningur fyrir aðra foreldra og aðstandendur í sömu sporum
- til að fræðast og fræða aðra um einhverfurófsraskanir
- til að standa saman ... því það er svo gaman
einhugur.blog.is/blog/einhugur


