Börnum með einhverfu er tryggður stuðningur á öllum skólastigum samkvæmt lögum. Stuðningurinn er mismunandi eftir greiningu barnsins og einnig eftir skólakerfi.
Það er algengt að í leikskólum sé haldið vel utan um börnin en svo minnkar sá stuðningur þegar komið er yfir í grunnskólann og margir foreldrar sem finna til vanmáttar.
Hér á síðunni hafa verið tekin saman réttindi einhverfra barna í skólakerfinu með tilvísun í lög og reglugerðir. Málið er hægt að kynna sér hér: Réttindi í skólakerfinu
Hver eru réttindi barnsins míns í skólakerfinu?

