Einhverfa.is

Þú ert hérna: Einhverfa Hvað er einhverfa
Villa
  • Villa varð í hleðslu gagnamiðlara.


Hvað er einhverfa - Sérkennileg og áráttukennd hegðun

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Atriðaskrá greina
Hvað er einhverfa
Félagsleg samskipti
Mál og tjáskipti
Sérkennileg og áráttukennd hegðun
Styrkleikar
Allar síður

Sérkennileg og árattukennd hegðun

Barn með einhverfu getur:

  • átt erfitt með að sjá tilgang í að taka þátt í öðru en því sem tengist áhuga þess
  • verið hrætt við breytingar, þurft rútínu
  • haft óvenjulegt ímyndunarafl og átt í erfiðleikum með að greina á milli ímyndunar og raunveruleika
  • fundið upp sinn eigin ímyndunarheim, sem getur verið takmarkaður og áráttukenndur
  • haft fullkomnunaráráttu og verið ófært um að tapa eða viðurkenna eigin mistök
  • átt í erfiðleikum með að eiga sérstök áhugamál sem veita ánægju og slökun
  • verið seint að tala, skrifa, lesa, …

Sum börn með einhverfu:

  • eru ofur viðkvæm
  • sýna óviðeigandi tilfinningaviðbrögð svo sem að hlæja þegar einhver grætur
  • hafa lítið innsæi gagnvart eigin tilfinningum
  • geta virst sjálflæg eða dónaleg
  • endurtaka líkamshreyfingar svo sem að snúa sér eða blaka höndum
  • hafa ósjálfráða vöðvakippi
  • eru hugfangin af skynjunaráreitum svo sem hjólum sem snúast, þræði sem snúið er upp á og blikkandi ljósum
  • verða skelfingu lostin við óvæntan og mikinn eða sérstakan hávaða eða breytingar í umhverfinu
  • sækja í líkamlega snertingu á eigin forsendum
  • þurfa að staðsetja sig (ná áttum) með því að slá á veggi eða húsgögn
  • eiga erfitt með að standa í röð
  • bregðast ekki við eða sýna ýkt viðbrögð við sársauka
  • eru viðkvæm fyrir áferð fæðu og vilja hafa hverja tegund aðskilda
  • eiga í vanda með salernisþjálfun