| Atriðaskrá greina |
|---|
| Hvað er einhverfa |
| Félagsleg samskipti |
| Mál og tjáskipti |
| Sérkennileg og áráttukennd hegðun |
| Styrkleikar |
| Allar síður |
Pamphlet about autism in English (PDF)
Broszura o autazmie po polsku (PDF)
Einhverfa
Athugið:
Hér er talað um börn með einhverfu en margt af því sem nefnt er á einnig við ungmenni og fullorðna með röskun á einhverfurófi.
Einkenni einhverfu geta verið mörg og af mismunandi styrkleika. Raskanir á einhverfurófi eru því margskonar birtingarmyndir af einhverfu.
Barn sem er greint með röskun á einhverfurófi á við verulega erfiðleika að etja á þremur sviðum:
- skerta færni til að taka þátt í félagslegum samskiptum
- skerta færni í máli og tjáskiptum
- sérkennilega og áráttukennda hegðun
Mikill munur getur verið á því hvernig þessir erfiðleikar koma fram hjá hverju barni. Helstu erfiðleikar flestra barna tengjast félagslegum samskiptum en meginvandamál annarra er ósveigjanleg hugsun.
Erfiðleikarnir sem börnin upplifa eru breytilegir. Erfiðleikar í máli og tjáskiptum geta falið í sér að sum börn tala ekki neitt en önnur tala endalaust um áhugamál sín. Barn með einhverfu skynjar veröldina á annan hátt en aðrir. Með því að vera meðvitað um vanda barnsins getur fólk haft áhrif á umhverfi þess og hjálpað því að takast á við hindranir í veröld þeirra, sem ekki eru með einhverfu.
Hvað er einhverfa

