Hvað á að gera ef grunur leikur á að barn sé með einhverfu?
Ugnabörn:
Best er að leita til ungbarnaeftirlits, læknis eða barnalæknis ef foreldrar hafa áhyggur af þroska ungabarns.
Leikskólabörn:
Þegar börn eru á leikskóla er best að setja sig í samband við leikskólann og biðja um aðstoð þar. Leikskólinn getur farið fram á að barnið sé skoðað nánar. Einnig er hægt að setja sig í samband við heimilislækni eða barnalækni.
Grunnskólabörn:
Fyrir grunnskólabörn er best haft samband við skóla barnsins, kennara, skólastjóra eða hjúkrunafræðings. Einnig er hægt að leita til heimilis- eða barnalæknis eða sjálfstætt starfandi sálfræðinga.
Í reglugerð 584/2012 segir: "Foreldrar nemenda í leik- og grunnskóla geta óskað eftir athugun, greiningu og ráðgjöf fyrir börn sín. Auk þess geta skólastjórnendur, kennarar, náms- og starfsráðgjafar, eða eftir atvikum annað starfsfólk skólans eða skólaheilsugæslu, lagt fram ósk um slíka sérfræðiaðstoð í samráði við og með samþykki foreldra. Beina skal beiðnum til skólastjóra."
Nánir upplýsingar má finna á vefsíðu Greiningar- og ráðgjafastöðvar ríkisins: Grunur um þroskafrávik.
Upplýsingar má einnig finna á vefsíðu Þroska- og hegðunarstöðvar Heilsugæslu höfðuborgarsvæðisins: Þroska- og hegðunarstöð.
Grunur um einhverfu

