| Atriðaskrá greina |
|---|
| Greiningarviðmið |
| Niðurstöður |
| Nánari útskýringar á greiningartækjum |
| Allar síður |
Síða 1 af 3
Greiningarviðmið
Þessar upplýsingar eru að mestu leyti unnar út frá glærum Karólínu Gunnarsdóttur, þroskaþjálfara sem má nálgast hér: Glærur.
Skoðunin byggir á:
- Viðtal við foreldra (ADI-R) - Skoðar öll 3 einkennasviðin og reiknuð stig út úr hverju fyrir sig og einnig samtals
- Bein athugun á hegðun (ADOS) - Tekur aðeins til félagslegs samspils og boðskipta. Stig út úr hvoru fyrir sig og svo samtals
- Mat á aðlögunarfærni (VABS) sem er fyllt út í viðtali við foreldra - Þar fást upplýsingar um félagslega aðlögun, athafnir daglegs lífs og boðskipti
- Læknisskoðun
Í greiningu eru skoðuð þrjú svið:
- Félagslegt samspil
- Mál og tjáning
- Áráttukennd hegðun
Leitað er eftir samspili og samsetningu þessara þriggja þátta.
Félagsleg samskipti:
Hérna er leitað eftir:
- Augntengsl, svipbrigði, líkamsstaða eða hreyfingar eru ekki notuð á venjulegan hátt í samskiptum við aðra
- Tengsl við jafnaldra þróast ekki á venjulegan hátt
- Skortur á félags- og tilfinningalegri gagnkvæmni
- Leita ekki huggunar þegar þeim líður illa eða leita eftir henni á óvenjulegan hátt
- Skert geta til að herma eftir
- Lítil eða engin viðleitni til að deila gleði, áhugamálum eða eigin afrekum með öðrum
Mál og tjáskipti
Hérna er leitað eftir:
- Málþroski er seinkaður og stundum er ekkert tal. Engin eða lítil viðleitni til að bæta upp skerta getu á málsviðinu með því að tjá sig með látbragði eða svipbrigðum
- Skert geta til að hefja og halda gangandi samræðum sem byggjast á gagnkvæmni og fela í sér svörun við því sem viðmælandi segir
- Sérkennileg málnotkun
- Sérkennilegt hjómfall eða hrynjandi í tali
- Eiga erfitt með að tileinka sér og nota viðeigandi svipbrigði í samtölum
Áráttukennd hegðun
Hérna er leitað eftir:
- Óvenjuleg og einhæf áhugamál og hugðarefni
- Áráttukennd þörf fyrir að fylgja ákveðnum föstum venjum eða ritúölum
- Stelgdar hreyfingar
- Óvenjulegur áhugi á ákveðnum eiginleikum hluta
Greiningarviðmið

