Þjónusta og stuðningur
Áherslur í þjónustu skulu ná til þeirra þátta sem skipta máli fyrir börn með röskun á einhverfurófi. Taka skal mið af hverju barni fyrir sig og fjölskyldu þess.
Þjónustan þarf að fela í sér:
- áætlun og úrræði er varða barnið og fjölskyldu þess
- ráðgjöf fyrir heimili og skóla
- sjónrænt skipulag er lykilatriði
Brýnt er að þjónusta við börn með röskun á einhverfurófi byggi á þekkingu og viðurkenndum leiðum. Sem dæmi má nefna: atferlisþjálfun og skipulagða kennslu (TEACCH). Markmiðið er að hafa jákvæð áhrif á horfur barns og fjölskyldu og að efla lífsgæði. Hafa ber í huga að þessi hópur er fjölbreytilegur og þjónusta þarf að taka mið af hverju barni fyrir sig og fjölskyldu þess. Foreldrasamtök og stuðningshópar gegna mikilvægu hlutverki fyrir fólk með röskun á einhverfurófi, foreldra og aðra aðstandendur.
Þessi texti er úr bæklingi sem gefinn er út af Umsjónarfélagi einhverfra árið 2012. Bæklingurinn er unnin af Ritnefnd UE:
Bjarnveig Bjarnadóttir, Eydís F. Hjaltalín, Laufey Gunnarsdóttir, Unnur S. Eysteinsdóttir.
Starfsfólk Greiningar- og ráðgjafastöðvar ríkisins sér um að setja upp þjálfunaráætlun fyrir börn sem fá þar greiningu sem miðast við barnið og þarfir þess.
Upplýsingar um réttindi einhverfra barna í skólakerfinu má finna hér:
Réttindi í skólakerfinu
Ýmis konar aðstoð og styrkir eru í boði fyrir einhverf börn og foreldra þeirra. Upplýsingar um það má finna hér á síðunni:
Réttindi í skólakerfinu - Bætur og styrkir - Stuðningur
Greining - Hvað svo

