Einhverfa.is

Þú ert hérna: Einhverfa
Villa
  • Villa varð í hleðslu gagnamiðlara.


Hvað er einhverfa

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Atriðaskrá greina
Hvað er einhverfa
Félagsleg samskipti
Mál og tjáskipti
Sérkennileg og áráttukennd hegðun
Styrkleikar
Allar síður

Bæklingur um einhverfu (PDF)

Pamphlet about autism in English (PDF)

Broszura o autazmie po polsku (PDF)


Einhverfa

Athugið:
Hér er talað um börn með einhverfu en margt af því sem nefnt er á einnig við ungmenni og fullorðna með röskun á einhverfurófi.

Einkenni einhverfu geta verið mörg og af mismunandi styrkleika. Raskanir á einhverfurófi eru því margskonar birtingarmyndir af einhverfu.

Barn sem er greint með röskun á einhverfurófi á við verulega erfiðleika að etja á þremur sviðum:

  • skerta færni til að taka þátt í félagslegum samskiptum
  • skerta færni í máli og tjáskiptum
  • sérkennilega og áráttukennda hegðun

Mikill munur getur verið á því hvernig þessir erfiðleikar koma fram hjá hverju barni. Helstu erfiðleikar flestra barna tengjast félagslegum samskiptum en meginvandamál annarra er ósveigjanleg hugsun.

Erfiðleikarnir sem börnin upplifa eru breytilegir. Erfiðleikar í máli og tjáskiptum geta falið í sér að sum börn tala ekki neitt en önnur tala endalaust um áhugamál sín. Barn með einhverfu skynjar veröldina á annan hátt en aðrir. Með því að vera meðvitað um vanda barnsins getur fólk haft áhrif á umhverfi þess og hjálpað því að takast á við hindranir í veröld þeirra, sem ekki eru með einhverfu.