Einhverfa.is

Þú ert hérna: Hópar Unglingahópar
Villa
  • Villa varð í hleðslu gagnamiðlara.


Unglingahópar

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Hugsuðir - unglingahópur á vegum Umsjónafélags einhverfra.

Í febrúar 2009 var farið af stað með unglingahóp á vegum Umsjónarfélags einhverfra. Hópurinn er hugsaður fyrir ungmenni á einhverfurófi á aldrinum 12-17 ára og markmiðið er að efla virkni þeirra,  kynna þau fyrir öðrum unglingum í svipuðum sporum og bjóða upp á tækifæri til að gera það sem jafnaldrar eru að fást við í sínum frítíma.

Hópurinn hittist annan hvern mánudag milli kl. 17:30 og 19:30 í félagsmiðstöðinni  Tónabæ.  Áhersla er lögð á félagsleg samskipti í því formi að hafa gaman, taka þátt í tilboðum í samfélaginu ásamt ýmis konar samveru. Sem dæmi hefur verið farið í keilu, út að borða, gönguferðir og tekist á við ýmsar þrautir úti og inni.  

Að öllu jöfnu eru umsjónarmenn hópsins þrír til fjórir og þeir hafa sérþekkingu á einhverfurófsröskunum.

Nánari upplýsingar um hópinn veitir Sigrún Birgisdóttir í síma 897 2682 eða sendið póst á póstfangið  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.