Einhverfa.is

Þú ert hérna: Fréttir
Villa
  • Villa varð í hleðslu gagnamiðlara.


Farsímar - snjallsímar - iPad

Opinn fræðslufundur Umsjónarfélags einhverfra

þriðjudaginn 27. september 2011

Farsímar – snjallsímar – iPad
stuðningstæki í daglegu lífi

TMF Tölvumiðstöð kynnir
Það að hafa ekki stjórn á og yfirsýn yfir verkefni dagsins getur valdið óróleika og vanlíðan. Almenna tækni eins og farsímann má nota sem hjálpartæki. Á kynningunni verður farið yfir hvernig venjulegir farsímar, snjallsímar og iPad geta verið stuðningstæki í daglegu lífi. Farsímann má m.a. nota sem minnis- og skipulagstæki. Hægt er að nota myndir, texta og tal.
Í iPad er m.a. hægt að búa til félagshæfnisögur og tjáskiptatöflur.

Fyrirlesarar: Sigrún Jóhannsdóttir talmeinafræðingur og Hrönn Birgisdóttir iðjuþjálfi.

Fundartími: Þriðjudaginn 27. september klukkan 20-22.

Fundarstaður: Háaleitisbraut 13, salur á 4.hæð

Fundurinn er öllum opinn.

 

Reiðnámskeið fyrir börn og ungmenni með fötlun

Hestamannafélagið Hörður

Varmárbökkum Mosfellsbæ

Hestamannafélagið Hörður í Mosfellsbæ býður upp á reiðnámskeið fyrir börn og ungmenni með fötlun.

Hestamannafélagið Hörður í samstarfi við Hestamennt ehf. býður upp á 5 vikna reiðnámskeið í reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ.

Eftirfarandi námskeið eru í boði:

Námskeið 1 : 19. september – 17. októberMánudagar kl. 14:45 - 15:45. 5 skipti í senn19. sept, 26. sept, 3.okt, 10.okt, 17.okt.

Námskeið 2 : 23. september – 21. októberFöstudagar kl. 14:45 15:45. 5 skipti í senn23.sept,30.sept,7.okt,14.okt,21.okt.

Námskeið 3 : 24.október – 21. nóvemberMánudagar kl. 14:45 - 15:45 . 5 skipti í senn24.okt,31.okt,7.nóv,14.nóv,21.nóv

Námskeið 4 : 28.október – 25.nóvemberFöstudagar kl. 14:45 - 15:45. 5 skipti í senn 28.okt,4.nóv,11.nóv,18.nóv,25.nóv.

Fyrir hverja er námskeiðið:

Öll börn og ungmenni sem við einhvers konar fötlun eða skerta getu að stríða vegna sjúkdóma eða af öðrum ástæðum og sem hafa áhuga á að umgangast hesta eða vilja kynnast hestamennsku.

Markmið námskeiðsins:

  • Eiga frábæra stund saman í skemmtilegur umhverfi
  • Geti umgengist hesta af öryggi og óttaleysi
  • Að kynnast hestinum og læra undirstöðuatriði í umhirðu hestsins.
  • Lært undirstöðuatriði í reiðmennsku eftir getu hvers og eins
  • Auka sjálfstæði og færni í samskiptum við hesta
  • Að bæta líkamsvitund
  • Að auka samhæfingu handa, fóta og skynfæra.
  • Styrkja leiðtogahlutverk í samskiptum við hestinn. Lagt er áhersla á fjölbreytni og að allir nemendur fái sem mest út úr námskeiðinu eftir þörfum hvers og eins.


Kennslan er í höndum reyndra leiðbeinanda með margra ára reynslu í reiðkennslu fatlaðra, sjúkraþjálfari verður til taks sem og aðrir aðstoðarmenn eftir þörfum.

Hvað er innifalið í námskeiðsgjaldi:Öll kennsla og kennslugögnLagðir eru til hestar fyrir hvern og einn sem og allur útbúnaður til reiðar þar á meðal sérsmíðaðir hnakkar og annar útbúnaður eftir þörfum.Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal í lok námskeiðs.

Námskeiðsgjald er 18.000 kr. Frekari upplýsingar og skráning er á www.hordur.is eða hjá Auði G. Sigurðardóttur s: 8997299/8986017Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Umsjónarmaður námskeiðsins er Súsanna Ólafsdóttir, reiðkennari.

 

Foreldrahópar í september

Reykjavík:

Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu mun hittast miðvikudagskvöldið 7. september klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.

Hópur foreldra barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast miðvikudagskvöldið 7. september klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Akureyri:

Foreldrahópur Umsjónarfélags einhverfra á Akureyri ætlar að hittast mánudaginn 12. september klukkan 20:00 í húsnæði Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg.

Aðrir foreldrahópar verða auglýstir síðar.

   

Ný grein í Greinasafnið

Undir liðnum "Greinar hér til vinstri er komin ný grein um aðstoð hunda í daglegu lífi barna með einhverfu. Greinin er byggð á BA-ritgerð sem er inni á Skemmunni

 

Skrifstofan lokuð miðvikudaginn 31. ágúst

Skrifstofa Umsjónarfélags einhverfra verður lokuð miðvikudaginn 31. ágúst vegna veikinda.

   

Uppboð til styrktar Umsjónarfélagi einhverfra

Uppboð að Mýrargötu 14, þriðjudaginn 23. ágúst kl. 20.

Hönnuðurinn Sigga Heimis, stóð fyrir nýstárlegri sýningu á Menningarnótt í ár. Undanfarin fimm ár hefur hún unnið að verkefni með einu þekktasta glerlistasafni heims, Corning glerlistasafninu í New York. Verkefnið, sem hófst sem tilraun með form og efni, þróaðist út í að blása hin ýmsu líffæri mannsins í gler. Að sögn Siggu varð verkefnið til þess að hún fór að kynna sér ástand líffæragjafar í heiminum, og komst að því að það er skelfilegt. Allt of fáir gerast líffæragjafar og afleiðingarnar eru meðal annars svartur markaður með líffæri.Til að vekja athygli á þessu, og tengja þannig hönnun og áríðandi málefni, þá voru líffærin til sýnis á Menningarnótt í Netagerðinni að Mýrargötu 14 (gamla Liborius), en þau verða síðan boðin upp núna á þriðjudaginn þann 23. ágúst kl. 20. á sama stað að Mýrargötu 14.Andvirði hjartans fer til Hjartaverndar, andvirði tveggja blóðkorna til Krabbameinsfélagsins og andvirði auga til Umsjónarfélags Einhverfra.

Allir eru velkomnir, heitt verður á könnunni og munu Ragna Árnadóttir (fyrrum dómsmálaráðherra) og Sindri Sindrason (fréttamaður) stýra uppboðinu

 

Reykjavíkurmaraþon 20. ágúst 2011

Nú fer að styttast í Reykjavíkurmaraþonið, en það verður haldið 20. ágúst.

Allir þeir sem taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka geta skráð sig til hlaups til styrktar ákveðnu málefni.

Á síðunni http://hlaupastyrkur.is/godgerdafelog/felag/700179-0289 eru þeir skráðir sem hlaupa fyrir Umsjónarfélag einhverfra. Þar getur almenningur farið inn, skoðað hlaupara og heitið á þá með kreditkorti eða með því að senda sms skeyti. Þannig er hægt að hvetja hlauparana til dáða og láta jafnframt gott af sér leiða. Hægt er að heita á hlaupara fram að miðnætti mánudaginn 22. ágúst en hlaupið fer fram laugardaginn 20. ágúst.

Endilega komið þessum upplýsingum áfram til vina og ættingja. Nú þegar hafa 18 manns skráð sig á síðuna til styrktar Umsjónarfélagi einhverfra og vonum við að þeim fjölgi. Þið sem ætlið að taka þátt í hlaupinu, munið að skrá ykkur þarna inn ef þið hafið áhuga á að styrkja félagið.

Hér eru svo slóðir á hjón sem ætla að hlaupa hálfmaraþon til styrktar félaginu :

http://hlaupastyrkur.is/hlaupid/keppandi?cid=2067

http://hlaupastyrkur.is/hlaupid/keppandi?cid=2069

Með kveðju, Sigrún Birgisdóttir, skrifstofu Umsjónarfélags einhverfra.

   

Sumarlokun skrifstofu

Skrifstofa Umsjónarfélags einhverfra verður lokuð í sumar frá 23. júní til 5. júlí og aftur frá 9. júlí til 9. ágúst. Ef þörf er á þá er hægt að senda okkur tölvupóst á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða hringja í okkur í eftirtalin símanúmer:

Eva Hrönn Steindórsdóttir formaður, s: 6914433

Sigrún Birgisdóttir framkvæmdastjóri, eftir 5. júlí s: 8972682

 

Menningarsjóður Visa úthlutar 8 styrkjum

Stjórn Menningarsjóðs Visa hefur úthlutað 8 styrkjum í ár. Stjórn sjóðsins ákvað að í ár skyldi styrkjum varið til menningar-, líknar- og velferðarmála. Að þessu sinni hlutu eftirtaldir styrk úr sjóðnum:

Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra - til að gefa út afmælis- og fræðslurit félagsins.

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur - til frekari uppbyggingar stofnunarinnar.

Umsjónarfélag einhverfra - til að standa straum af kostnaði við unglingastarf félagsins.

Leikhópurinn Vesturportið - til að efla starfsemi leikhópsins.

Geirþrúður Á. Guðjónsdóttir - til að stunda meistaranám í fiðluleik við Hartt School of Music í Hartford í Connecticut.

Jóhann Nardeau - til að stunda BA nám í trompetleik við Parísarkonservatoríið.

Matthías I. Sigurðsson - til að stunda BA nám í klarinettuleik við Conservatorium van Amsterdam.

Sigríður Sunna Reynisdóttir - til að stunda nám í leikbrúðulist við Central School of Speech and Drama í London.

Á hluthafafundi nýverið var ákveðið að breyta nafni sjóðsins í Samfélagssjóð Valitor og mun sjóðurinn bera nýtt nafn eftirleiðis. Sjóðurinn var stofnaður fyrir 19 árum og er hlutverk hans að styðja við vandlega valin málefni sem bæta mannlíf og efla. Efni styrkveitinga hefur þróast í áranna rás og þykir við hæfi að nafn sjóðsins endurspegli tilgang hans og beri nafn félagsins. Frá upphafi hafa verið veittir samtals 124 styrkir til einstaklinga og samtaka sem starfa að menningar-, mannúðar- samfélags- og velferðarmálum. Framvegis er stefnt að úthlutun úr sjóðnum tvisvar á ári. Stjórn sjóðsins afhenti styrkina en hana skipa Björk Þórarinsdóttir, stjórnarformaður VALITOR, Viðar Þorkelsson, forstjóri VALITOR og Kristján Þór Harðarson, sviðsstjóri markaðs- og þróunarsviðs VALITOR. Nánari upplýsingar veitir Kristján Þór Harðarson, sviðsstjóri markaðs- og þróunarsviðs í síma 525-2000

Á meðfylgjandi mynd eru:

Fremri röð f.v. Hörtur Þórarinsson, Guðrún Nielsen og Þórey Guðmundsdóttir frá Félagi áhugafólks um íþróttir aldraðra FÁÍA, Frú Vigdís Finnbogadóttir fyrir hönd Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur, Geirþrúður Á. Guðjónsdóttir, Sigrún Birgisdóttir, framkvæmdastjóri Umsjónarfélags einhverfra, Judith Thorbergsson fyrir hönd Matthíasar I. Sigurðssonar, Selma Reynisdóttir fyrir hönd Sigríðar Sunnu Reynisdóttur, Martial Nardeau fyrir hönd Jóhanns Nardeau og Viðar Þorkelsson, forstjóri VALITOR.

Aftari röð f.v. Björk Þórarinsdóttir, stjórnarformaður VALITOR, Gísli Örn Garðarsson og Víkingur Kristjánsson fyrir hönd Leikhópsins Vesturportið.

   

Ábendingahnappur frá Barnaheill