Einhverfa.is

Þú ert hérna: Fréttir
Villa
  • Villa varð í hleðslu gagnamiðlara.


Leonardo styrkur til þýðingar, staðfærslu og þróunar efnis í atferlisþjálfun

Leonardo menntaáætlunáætlun Evrópusambandsins hefur nýverið veitt styrk til samstarfsverkefnis, sem felur í sér þýðingu, staðfærslu og frekari þróun á kennsluefni sem byggir á hagnýtri atfelisgreiningu og nýtist við atferlisþjálfun barna með röskun á einhverfurófi.

Kennsluefnið var upphaflega þróað á Norður-Írlandi og nefnist Simple Steps á frummálinu. Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins er aðili að verkefninu og verkefnisstjóri hér á landi er Sigríður Lóa Jónsdóttir sálfæðingur.

Um er að ræða margmiðlunar efni þar sem upplýsinga um einhverfu og aðferðir sem byggja á hagnýtri atferlisgreiningu er miðlað í texta og myndmáli. Efnið felur meðal annars í sér upplýsingar og leiðbeiningar í lítilli bók, upptökur og hreyfimyndir. Fjallað er á einfaldan og aðgengilegan hátt um þau lögmál sem liggja til grundvallar hegðun, hvernig megi nýta þau til þess að byggja upp nýja færni og að takast á við krefjandi hegðun.

Markmið efnisins er að veita foreldrum og þjálfurum barna með einhverfu haldgóðar upplýsingar sem hjálpa til við að skilja þau vísindi sem liggja til grundvallar þjálfunni og nýtast við að byggja upp og taka þátt í þjálfun barns með einhverfu í samvinnu við ráðgjafa með sérhæfingu á þessu sviði. Efnið þykir einstaklega foreldravænt, en það var upphaflega þróað í samstarfi við foreldra barna með einhverfu. Efnið nýtist einnig við þjálfun barna sem eru með önnur frávik í þroska.

Simple Steps efnið hefur verið gefið út í notendavænni öskju auk þess sem hægt er að kaupa aðgang að ensku útgáfunni á netinu fyrir hóflegt verð. Netútgáfur á öðrum tungumálum verður hægt að nálgast innan skamms, en íslenska útgáfan kemur á markað í ársbyrjun 2014. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: www.simplestepsautism.com. Þess má geta að fyrr á þessu ári fékk verkefnið viðurkenningu frá Leonardo sem „Project of Excellence“.

Margar rannsóknir eru fyrirliggjandi sem sýna að aðferðir sem byggja á hagnýtri atferlisgreiningu eru árangursríkar við kennslu og þjálfun barna með einhverfu og þá sérstaklega þegar um er að ræða yfirgripsmikla áætlun, sem í daglegu tali hér á landi er nefnd heildstæð atferlisþjálfun. Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins hefur um árabil boðið foreldrum og fagfólki upp á námskeið á þessu sviði, en þýðing og staðfærsla Simple Steps efnisins mun verða mikil lyftistöng fyrir fræðslustarfið og gera þekkinguna aðgengilegri.

 

Foreldrahópar í nóvember

Akranes

Foreldrahópur einhverfra barna á Akranesi mun hittast miðvikudagskvöldið 9. nóvember n.k. í Fjöliðjunni Dalbraut Akranesi. Við hittumst klukkan 20:30. Nánari upplýsingar veitir Elsa Lára í síma 615-2177 eða á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Akureyri

Hópur foreldra barna á Akureyri mun hittast mánudaginn 14. nóvember klukkan 20.00 á skrifstofu Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg.

Reykjanes:

Hópur foreldra á Reykjanesi mun hittast fimmtudagskvöldið 3. nóvember kl. 20:30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ. Vonumst til að sjá sem flesta. Kveðja, Jóhanna María, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. 862-8209.

Reykjavík:

Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu mun hittast miðvikudagskvöldið 2. nóvember klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, í fundarsal á 4. hæð.

Hópur foreldra barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast miðvikudagskvöldið 2. nóvember klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, fundarherbergi 4. hæð.

Allir eru velkomnir í hópastarfið. Ekki þarf að tilkynna þátttöku.

 

Skrifstofan lokuð 17. - 21. október

Skrifstofa Umsjónarfélags einhverfra verður lokuð vikuna 17. - 21. október vegna samnorræns fundar.

   

Ráðstefna Þroskahjálpar

Landssamtökin Þroskahjálp 35 ára

Ráðstefna í tengslum við Landsþing Landssamtakanna Þroskahjálpar haldin áGrand Hótel Reykjavík laugardaginn 22. október 2011

„Þátttaka og sýnileiki - að breyta ímynd“

Fundarstjóri: Aileen Soffía Svensdóttir

Dagskrá:

09:00-09.15 Setning Gerður A. Árnadóttir formaður

09:15-09:30 Þátttaka fólks með þroskahömlun í rannsóknumSteindór Jónsson

10:00-10:30 List án landamæra, tilgangur og ávinningur Margrét Norðdahl og þátttakendur

10:30-11:00 „Með okkar augum“ um gerð sjónvarpsþáttanna Elín Sveinsdóttir og þátttakendur

11:00-11:15 Kaffi

11:15-11:45 Hugmyndafræði Glad miðstöðvarinnar* í Kaupmannahöfn Henrik Martinius

11:45-12:15 Sendiherrar samning S.Þ. um réttindi fatlaðra Ásdís Guðmundsdóttir og þátttakendur

12:15-12:30 Fyrirspurnir og umræður

12:30 Ráðstefnuslit

*Glad- miðstöðin í Kaupmannahöfn er fræðslumiðstöð sem m.a. rekur TV-Glad, sjónvarpsstöð þar sem fólk með þroskahömlun starfar og sér um efni, upptökur o.fl.

Ráðstefnan er opin öllum og ekkert þátttökugjald. Skráning þátttöku er á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 588-9390

 

Skautanámskeið fyrir fatlaða

Skautaæfingar fyrir fatlaða Íþróttafélagið Ösp, býður upp á 10 vikna skautanámskeið fyrir fatlaða og þroskahamlaða einstaklinga í Skautahöllinni í Laugardal frá og með 9.október 2011. Kennt er eftir alþjóðlegum áfangamarkmiðum Special Olympics hreyfingarinnar þar sem einstaklingurinn er í fyrirrúmi.

Flokkar eru aldurs og getuskiptir Þriðjudagar 6-10 ára Kl.17:30-19:10 Sunnudagar 11 ára og eldri Kl.19:30-21:15

Markmið

§ Að auka almenna færni innan íþróttarinnar

§ Að efla styrk og úthald

§ Að bæta jafnvægi og samhæfingu

§ Að bæta líkamsvitund og túlkun tónlistar

Helga Olsen leiðir hóp reyndra þjálfara sem bjóða upp á metnaðarfullar, fjölbreyttar og skemmtilegar æfingar fyrir fatlaða og þroskaskerta einstaklinga frá 6 ára aldri.

Vertu með í skemmtilegum hópi, hlökkum til að sjá þig!! Verð aðeins:15.000,-

Helga Olsen leiðir hóp reyndra þjálfara sem bjóða upp á metnaðarfullar, fjölbreyttar og skemmtilegar æfingar fyrir fatlaða og þroskaskerta einstaklinga frá 6 ára aldri. Vertu með í skemmtilegum hópi, hlökkum til að sjá þig!! Verð aðeins:15.000,-

Frekari upplýsingar og skráning er í höndum þjálfara námskeiðsins, Helga Olsen Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Sími: 698-0899

   

Foreldrahópar í október og kynning Ástu Birnu á Akureyri

Akureyri:

Sunnudaginn 9. október klukkan 16.00 verður Ásta Birna Ólafsdóttir þroskaþjálfi með kynninguna „Í skóla Somu Mukopadhayay“ fyrir foreldra á Akureyri og nágrenni. Ásta var í hálft ár í Texas til að læra um RPM kennsluaðferðina. Þessi kynning verður um námsferðina og örstutt um aðferðina. Einhverjir muna eftir þessari aðferð úr myndinni „Sólskinsdrengurinn“.

Mánudaginn 10. október klukkan 20.00 verður svo hefðbundinn foreldrafundur.

Bæði kynningin og foreldrafundurinn verða á skrifstofu Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg.

Reykjanes:

Hópur foreldra á Reykjanesi mun hittast fimmtudagskvöldið 6. október kl. 20:30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ. Vonumst til að sjá sem flesta. Kveðja, Jóhanna María, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. 862-8209.

Reykjavík:

Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu mun hittast miðvikudagskvöldið 5. október klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.

Hópur foreldra barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast miðvikudagskvöldið 5. október klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Aðrir foreldrahópar verða auglýstir síðar.

 

Knattspyruæfingar fyrir konu 12-18 ára með þroskahönlun

Fréttatilkynning

Special Olympics á Íslandi, KSÍ, knattspyrnufélagið Víkingur og íþróttafélagið Ösp hafa sett á fót samstarfsverkefni um Unified Sport á Íslandi. Unified Sport er nýtt verkefni hér á landi en verkefnið er á vegum Special Olympics international. Verkefnið felur í sér æfingar og keppni þar sem fatlaðir og ófatlaðir eru saman í liði.

Fyrsta íþróttagreinin sem sett verður upp á þennan hátt er knattspyrna kvenna. Æfingar verða á vegum knattspyrnufélagsins Víkings og íþróttafélagsins Aspar og æft verður einu sinni í viku á laugardögum kl. 12.00 – 13.30 á knattspyrnusvæði Víkings. Þjálfarar verða Einar Guðnason, þjálfari hjá Víkingi og Darri McMahon, þjálfari hjá Ösp.

Stelpur og konur með þroskahömlun er sá markhópur sem æfingarnar ná til og skorað er á þær að taka með sér vinkonur, systur eða skólasystur. Stúlkur úr knattspyrnufélaginun Víkingi verða með á æfingunum sem eru fyrir 12 ára og eldri.

Markmið æfinganna eru:

· Bæta grunntækni í knattspyrnu

· Stuðla að heilsusamlegri hreyfingu

· Stuðla að góðum félagsskap

· Auka áhuga á knattspynu og hreyfingu almennt

· Stuðla að jákvæðri upplifun af knattspyrnu og hreyfingu

Nánari upplýsingar veitir Darri McMahon í síma 8678049 og Ólafur Ólafsson formaður Aspar. Sími 8998164 Netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Endilega vera óhrædd að koma með fyrirspurnir eða séróskir, við munum reyna að skoða allt sem upp kemur þannig að þetta gangi sem allra best.

   

Lífsleikni - námskeið fyrir stúlkur

L í f s l e i k n i

Námskeið og umræðutímar á vegum Umsjónarfélags einhverfra og Þekkingarseturs Áss um félagstengsl og kynímynd

Fyrir stúlkur með röskun á einhverfurófi á aldrinum

13-15 ára og 16-20 ára

Í hverjum hópi verða 3-5 stúlkur og mun hver stúlka koma í viðtal áður en námskeiðið hefst til að ræða væntingar og sérstakar óskir. Þetta skiptir máli fyrir samsetningu hópanna. Hóparnir hittast í sex skipti, tvær klukkustundir í senn. Ákveðin þemu eru höfð að leiðarljósi og hefst hver tími með fræðsluinnleggi sem verða síðan rædd frekar með umræðum og verkefnum.

Þemu:

- Sjálfsmynd og tilfinningar

- Samskipti við vini og fjölskyldu

- Strákar og Netið

- Kynlif, kynsjúkdómar og getnaðarvarnir

- Umgengni og ábyrgð
Tímasetning: Verður skipulögð í samráði við þátttakendur.

Leiðbeinendur: Laufey Gunnarsdóttir þroskaþjálfi, María Jónsdóttir félagsráðgjafi og Þóra Leósdóttir iðjuþjálfi.

Skráning og upplýsingar: Hjá Maríu í síma 414 0500 eða sendið tölvupóst á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. með upplýsingum um nafn og síma og haft verður samband.

Þátttökugjald:kr. 15.000.-

Staðsetning: Stjörnugróf 9 við Blesugróf (Lækjarás)

 

Bútasaumsteppi fyrir börn

Til foreldra barna á einhverfurófi.

Umsjónarfélagi einhverfra hafa verið gefin bútasaumsteppi fyrir börn. Það er Bútasaumsfélag Íslands sem gefur teppin. Þetta er norsk hugmynd og heitir framtakið "Teppi handa hetju". Þetta snýst um það að barnið komi sjálft og velji sér teppi og það er tekin mynd af barninu með teppið og er myndin síðan send til félagsins. Og fær því sá sem gerði teppið mynd af barninu með teppið sem viðkomandi saumaði. Umhyggja hefur nú þegar afhent mörgum börnum teppi en nú fá börn á einhverfurófi tækifæri til að koma og velja sér teppi.

Teppin verða afhent á Háaleitisbraut 13, 4. hæð, næstkomandi sunnudag, 25. september milli klukkan 12:00 og 14:00. (athugið að um takmarkaðan fjölda teppa er að ræða, þ.e. ca40-50 teppi)

Munið að börnin verða að koma með foreldrum og velja sjálf teppi ef nokkur möguleiki er á því.
Með kveðju, Sigrún Birgisdóttir, skrifstofu Umsjónarfélags einhverfra.

   

Ábendingahnappur frá Barnaheill