Einhverfa.is

Þú ert hérna: Fréttir
Villa
  • Villa varð í hleðslu gagnamiðlara.


Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn 2. júní

Hátíð í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum 2. júní klukkan 12-16.

Í tilefni að 30 ára afmæli Umsjónarfélags einhverfra á þessu ári, erfélagsmönnum, fjölskyldum þeirra, íbúum sambýla og starfsfólki sambýla og skammtímavistana boðið í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, laugardaginn 2. júní frá klukkan 12 til 16.  Verðum við með veitingatjaldið hjá kaffihúsinu á leigu.  Þar verður boðið uppá grillaðar pylsur, kaffi, safa og meðlæti.  Einnig verða skemmtiatriði í tjaldinu. Fólk er vinsamlegast beðið að gefa sig fram í miðasölu og sýna fréttabréfið til að fá frítt inn.  Þar geta börn fengið miða í tækin eða armbönd sem veita ótakmarkaðan aðgang í tækin (hentar þeim börnum sem fara mikið í tækin).

Drög að dagskrá í veitingatjaldinu:

Tími:
12-13  Grillaðar pylsur
13-14  Ávarp frá formanni   Skemmtiatriði
14-16  Kaffi og meðlæti
Gott væri að fá tölvupóst frá félagsmönnum um þátttöku svo við getum áætlað fjöldann.  Netfangið er Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
 

Hestanámskeið

Þann 11 júní nk hefjast sumarnámskeið fyrir börn og unglinga. Námskeiðin eru alla virka daga og viku í senn, vikurnar sem í boði eru 24-30 og 33 vika ársins.

Allar nánari upplýsingar fást í síma 895-6012 eða @ Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Minni svo á að vetrardagskrá mun hefjast að nýju þann 3 september 2007.

F.h Rífandi Gangs ehf

Ragnhildur Benediktsdóttir þjálfara- og reiðkennari FT.

 
nocra2007

Ráðstefna um litróf einhverfu 2007

Vakin er athygli á ráðstefnunni The 5th Nordic Conference on Research on Autism Spectrum Disorders, sem verður haldin á Grand hóteli í Reykjavík dagana 30. maí - 1. júní 2007. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Making a difference". Þetta verður í fyrsta sinn sem fjölþjóðleg ráðstefna um einhverfu er haldin hér á landi. Er þetta kjörið tækifæri fyrir fagfólk og foreldra til að afla sér þekkingar á því nýjasta sem er að gerast í rannsóknum á einhverfu. 

Upplýsingar og skráning á heimasíðu ráðstefnunnar http://www.yourhost.is/nocra2007 

Skráningarfrestur fyrir afsláttargjald er 1. apríl.

   

Fræðslufundur

Fræðslufundur Umsjónarfélags einhverfra
Þriðjudaginn 27. febrúar klukkan 20:00.

Fundarstaður: Salur á fjórðu hæð í Sjónarhóli, Háaleitisbraut 11-13, 108 Reykjavík

Fundarefni: Sænska Empowerment / lífseflingar verkefnið.

Hanne Danmo sem er með Aspergergreiningu og Mats Jansson segja frá Empowerment / lífseflingar verkefnum í Svíþjóð. Með lífseflingarverkefnum hefur Svíum tekist á síðustu fjórum árum að virkja 1.200 einstaklinga með einhverfu sem komnir eru á fullorðinsár. Þannig hefur tekist að rjúfa félagslega einangrun margra og auka þekkingu og virðingu fyrir einhverfu. Einstaklingar sem taka þátt í þessum verkefnum eru hátt standandi á einhverfurófinu t.d. með ódæmigerða einhverfu eða Aspergerheilkenni. Í dag taka einhverfir þátt í lands- og svæðisstjórnum einhverfra í Svíþjóð, þetta var nánast óþekkt fyrir fjórum árum. Einhverfir stjórna nú sjálfir lífseflingarverkefnum, umræðuhópum, útgáfu tímarita o.s.frv.

Samkvæmt nýjustu rannsóknum eru einn af hverjum 150 einstaklingum á einhverfurófinu. Þetta þýðir að á Íslandi eru um 2.000 einstaklingar með fötlun á einhverfurófi. Mikill minnihluti þessarra einstaklinga hefur fengið greiningu.. Með bættri greiningartækni er nú að fjölga mikið í þeim hópi sem er eldri en 18 ára. Lítið hefur verið um úrræði fyrir þessa einstaklinga til að vinna í þeim málefnum sem skipta þá máli. Með því að kynnast því starfi sem hefur gengið mjög vel í Svíþjóð er það von Umsjónarfélags Einhverfra að hægt verið að útbúa farveg fyrir þennann ört vaxandi hóp einstaklinga.

 

Biðlistar eftir greiningu á einhverfu

Umsjónarfélag einhverfra skorar á stjórnvöld að gera átak í að eyða biðlista eftir greiningu á Greiningar og ráðgjafastöð ríkisins. Tíðni þeirra sem greinast með einhverfu er að hækka og greinast nú 6 einstaklingar af 1.000 á einhverfurófinu.   Að meðaltali greinast 26 einstaklingar í hverjum árgangi á Íslandi. Nú eru 154 börn og ungmenni á biðlista eftir greiningu og þurfa mörg hver að bíða í nokkur ár og fá á meðan ekki rétta þjónustu

Frístunda og tómstundaúrræði. 

Skorað er á sveitafélög landsins að þau tryggji fötluðum börnum og unglingum frístundarúrræði að loknum hefðbundnum skóladegi, eins og samkomulag Félagsmálaráðuneytis og sveitafélaga gerir ráð fyrir.

Félagið hvetur að hafinn verði undirbúningur að samkomulagi sem tryggir sama úrræði fyrir ungmenni á framhaldsskólaaldri.

Við skorum jafnframt á sveitafélög að tryggja sumartómstundaúrræði fyrir einstaklinga með einhverfu, til jafns við önnur börn og ungmenni. 

Þessi þjónusta gegnir lykilhlutverki í  félagslegri virkni barna og unglinga með einhverfu og tryggir jafna stöðu foreldra til þáttöku í atvinnulífinu.

Búsetumál. 

Umsjónarfélag einhverfra bendir á umtalsverðan vanda í búsetumálum einhverfra einstaklinga.  Sérstaklega er ástandið alvarlegt á Reykjanesi, en þar búa rúmlega 6 af hverjum 10 fullorðinna einhverfra enn á heimilum foreldra sinna, en til samanburðar er þetta hlutfall um 37% í öðrum landshlutum, sem er óviðunandi hátt hlutfall.  Búast má við verulega aukinni þörf fyrir sambýli og önnur búsetuúrræði fyrir einhverfa á næstu 8 árum, þar eð fleiri börn hafa greinst einhverf á síðustu árum en áður var. Félagsmálayfirvöld verða nú þegar að hefja undirbúning á því hvernig mæta á aukinni þjónustuþörf vegna fjölgunar einhverfra. UE telur þörf á að taka a.m.k. 12 ný sambýli í notkun fyrir einhverfa á höfuðborgarsvæðinu einu saman á næstu 8 árum til þess að þjónusta þá einstaklinga sem þurfa hvað mesta umönnun.  Þar af er brýn þörf fyrir 3 ný sambýli í Suðvesturkjördæmi á næstu tveimur árum.  Einnig þarf að fjölga áfangastöðum til þess að auka líkur á að fleiri einhverfir einstaklingar geti tekið upp sjálfstæða búsetu, svo og að auðvelda einhverfum að búa lengur í foreldrahúsum með því að bjóða upp á aukna þjónustu í formi skammtímavistunar, þ.á.m. lengri vistun (2-3 vikur í senn) einu sinni til tvisvar á ári.  Slíkar aðgerðir yrðu ekki aðeins til þess að auka lífsgæði einhverfra og aðstandenda þeirra, heldur munu þær einnig auka hagkvæmi í þjónusturekstri félagsmálayfirvalda.   Brýnt er að unnin verði áætlun um nauðsynlegan fjölda stöðugilda sem tengjast  þjónustu við einhverfa í búsetuúrræðum.  Í því sambandi þarf að leggja áherslu á framhalds- og endurmenntun starfsfólks til að bæta starfsheldni, laða fleiri að störfum og auka hæfni starfsmanna. Á liðnu starfsári vann nefnd á vegum UE úttekt á núverandi stöðu og að mótun framtíðarsýnar í búsetumálum  (sjá á heimasíðu UE, http://einhverfa.is//). 

   

Ábendingahnappur frá Barnaheill