Einhverfa.is

Þú ert hérna: Fréttir Fréttasafn
Villa
  • Villa varð í hleðslu gagnamiðlara.


Foreldrahópar í apríl

Akureyri:
Foreldrahópur á Akureyri ætlar að hittast þriðjudagskvöldið 10. apríl klukkan 20.00 í húsnæði Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg. Athugið að í þetta skipti er það þriðjudagur en ekki mánudagur eins og venjulega.

Reykjavík:
Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu mun hittast miðvikudagskvöldið 11. apríl klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, í fundarsal á 4. hæð.
Hópur foreldra barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast miðvikudagskvöldið 11. apríl klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, fundarherbergi 4. hæð.

Vestmannaeyjar:
Einhugur, foreldrar Eyjabarna á einhverfurófi, ætla að hittast miðvikudaginn 11. apríl í heimahúsi. Nánari upplýsingar hjá Guðrúnu í síma 698 5510 eða sentið tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Upplýsingar koma einnig inn á http://einhugur.blog.is og facebook síðuna Einhugur foreldrafélag.

Allir eru velkomnir í hópastarfið. Ekki þarf að tilkynna þátttöku.

 

Skrifstofan lokuð 2.-6. apríl

Skrifstofa Umsjónarfélags einhverfra verður lokuð vikuna 2. til 6. apríl.

 

Fræðslufundur 20. mars

Opinn fræðslufundur Umsjónarfélags einhverfra þriðjudaginn 20. mars 2012

Fundarefni:
Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

Kynnt verður innihald sáttmálans en markmið hans er „að stuðla að því að fatlað fólk njóti allra mannréttinda og mannfrelsis til fulls og jafns við aðra, jafnframt því að vernda og tryggja slík réttindi og frelsi, og að auka virðingu fyrir meðfæddri göfgi þess“.

Fyrirlesari: Friðrik Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar.

Fundartími: Þriðjudagur 20. mars, klukkan 20-22.

Fundarstaður: Háaleitisbraut 13, salur á 4. hæð.

 

Við hvetjum félagsmenn til að mæta og kynna sér efni sáttmálans.

Fundurinn er öllum opinn.

   
img4

Foreldrahópar í mars

Akranes:
Foreldrahópurinn á Akranesi og nágrenni hittist miðvikudagskvöldið 7. mars klukkan 20:30 í Fjöliðjunni við Dalbraut á Akranesi. Upplýsingar í síma 4312177 og 6152177 eða á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Akureyri :
Foreldrahópur á Akureyri ætlar að hittast mánudagskvöldið 12. mars klukkan 20.00 í húsnæði Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg.

Reykjanes:
Hópur foreldra á Reykjanesi mun hittast fimmtudagskvöldið 8. mars kl. 20:30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ. Vonumst til að sjá sem flesta. Kveðja, Jóhanna María, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. 862-8209.

Reykjavík:
Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu mun hittast miðvikudagskvöldið 7. mars klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, í fundarsal á 4. hæð.
Hópur foreldra barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast miðvikudagskvöldið 7. mars klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, fundarherbergi 4. hæð.

Suðurland:
Foreldrar barna á einhverfurófi og fullorðið fólk á einhverfurófi á Suðurlandi ætla að hittast fimmtudagskvöldið 15. mars klukkan 20-21:30, í Smiðjunni, Austurvegi 36, Selfossi, Sjóvá er við hliðina. Nánari upplýsingar veitir Þórunn Ósk, netfangið er Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Vestmannaeyjar:
Einhugur, foreldrar Eyjabarna á einhverfurófi, ætla að hittast mánudaginn 5. mars í heimahúsi. Nánari upplýsingar hjá Guðrúnu í síma 698 5510 eða sentið tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Upplýsingar koma einnig inn á http://einhugur.blog.is og facebook síðuna Einhugur foreldrafélag.

Allir eru velkomnir í hópastarfið. Ekki þarf að tilkynna þátttöku.

 

Fræðslufundur 23. febrúar

Opinn fræðslufundur Umsjónarfélags einhverfra Fimmtudaginn 23. febrúar 2012

Fundarefni:
Breytt landslag einhverfu á Íslandi

Hækkandi algengi einhverfurófsraskana og afleiðingar fyrir þjónustukerfið og notendur

Sagt verður frá rannsóknum á algengi einhverfu og einhverfurófsraskana á Íslandi og annars staðar í heiminum og skoðað hvernig hækkandi algengi hefur áhrif á samsetningu hópsins sem fær greiningu. Hækkandi algengi hér á landi er bein afleiðing aukinnar þekkingar á þessu sviði og hvernig þjónustukerfið hefur brugðist við með auknum fjölda tilvísana. Vísbendingar eru um að til sé að verða nýr „landamærahópur“ sem hrekst um í kerfinu.

Fyrirlesari: Dr. Evald Sæmundsen sálfræðingur, sviðsstjóri á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.

Fundartími: Fimmtudaginn 23. febrúar klukkan 20-22. Fundarstaður: Háaleitisbraut 13, salur á 4. hæð.

Við hvetjum félagsmenn til að mæta og kynna sér stöðu mála.

Fundurinn er öllum opinn.

   

Special Olympics á Íslandi

Ráðstefna Special Olympics á Íslandi

Radisson BLU, Hótel Sögu 25. febrúar 2012
kl. 9.30 – 13.00, Katla 2. hæð

Ráðstefnustjórar; Jón Þórarinsson, Inga Hanna Jóhannesdóttir, Óli Þormar
Skemmtiatriði; Sigurður Valur Valsson

09.30 - 09.40 Setning ráðstefnu.
Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður Special Olympics á Íslandi

09.45 – 10.05 „Alþjóðasamtök Special Olympics, þátttaka Íslands"
Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, frkvstj. Special Olympics á Íslandi

10.10 – 10. 25 „Þátttaka – Sjálfstyrking – Sjálfstæði"
Ásta Friðjónsdóttir, aðstandandi

10.30 – 10.50 „Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi"
Helga Olsen, skautaþjálfari

10.55 – 11.10 „Knattspyrna er fyrir alla"
Sæþór Jensson og Jakob Alexander Aðils, knattspyrnumenn

11.-10 – 11.20 Kaffihlé.

11.20 - 11.35 „ Þú getur, ég get líka. Saga frá Kína"
Halla Björg Baldursdóttir, aðstandandi

11.40 – 11.50 „Special Olympics , jákvæð áhrif á sál og líkama"
Sigrún Birgisdóttir, aðstandandi

11.50 – 12.00 „Special Olympics, breytir einhverju að taka þátt"?
Bryndís Sumarliðadóttir, aðstandandi

12.05 – 12.20 „Fimleikar gefa lífinu gildi"
Elva Björg Gunnarsdóttir, Helgi Magnússon, fimleikafólk

12.25. – 12.40 „Íþróttir skipta máli"
Guðmundur Sigurðsson og Karen Ásta Friðjónsdóttir, aðstandendur

12.40 – 13.00 Samantekt

 

Ráðstefnugjald kr. 1.500.- Innifalið kaffi/drykkir og meðlæti. Greitt á staðnum.

Vinsamlegast skráið þátttöku hér

Tilboð fyrir ráðstefnugesti. Hádegisverður í Skrúði- kr. 2.500 fyrir fullorðna

1.250 fyrir 6. – 12 ára og frítt fyrir yngri en 6 ára. Latabæjarhorn og ísbar fyrir börnin

Nánari upplýsingar www.ifsport.is 5144080 / Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Foreldrahópur á suðurlandi

Foreldrar barna á einhverfurófi á Suðurlandi ætla að hittast fimmtudagskvöldið 9. Febrúar klukkan 20-21:30, í Smiðjunni, Austurvegi 36, Selfossi, Sjóvá er við hliðina. Nánari upplýsingar veitir Þórunn Ósk, netfangið er Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Allir eru velkomnir og ekki þarf að tilkynna mætingu.

   

Fótbolti fyrir stelpur

Fréttatilkynning

Íþróttafélagið Ösp og Knattspyrnufélagið Víkingur bjóða í vetur upp á knattspyrnunámskeið fyrir þroskahamlaðar stelpur á öllum aldri, vinkonur þeirra, skólafélaga og aðra sem áhuga hafa.

Námskeiðið byggir á hugmyndafræði Unified football þar sem fatlaðir og ófatlaðir æfa og keppa saman í liði. Knattspyrnustelpur úr Víkingi hafa

tekið þátt í verkefninu í haust en stefnt er að því að senda kvennalið til þátttöku í Unified football á leikum Special Olympics í framtíðinni.

Æfingar eru fyrir alla aldurshópa og fara fram

á laugardögum kl. 14:45 – 16:00 í íþróttahúsi Hlíðarskóla.

Markmið æfinganna eru:

Bæta grunntækni í knattspyrnu

Stuðla að heilsusamlegri hreyfingu

Stuðla að góðum félagsskap

Auka áhuga á knattspynu og hreyfingu almennt

Stuðla að jákvæðri upplifun af knattspyrnu og hreyfingu

Nánari upplýsingar veitir Darri McMahon í síma 8678049 eða

Ólafur Ólafsson formaður Aspar. Sími 8998164

Netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

ALLIR GETA VERIÐ MEÐ

ÞAÐ VERÐUR TEKIÐ VEL Á MÓTI ÞÉR, HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG

 

Foreldrahópar í febrúar

Akranes

Foreldrahópurinn á Akranesi og nágrenni hittist miðvikudagskvöldið 1. febrúar klukkan 20:30 í Fjöliðjunni við Dalbraut á Akranesi. Upplýsingar í síma 4312177 og 6152177.

Akureyri

Foreldrahópur á Akureyri ætlar að hittast mánudagskvöldið 13. febrúar klukkan 20.00 í húsnæði Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg.

Reykjanes:

Hópur foreldra á Reykjanesi mun hittast fimmtudagskvöldið 2. febrúar kl. 20:30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ. Vonumst til að sjá sem flesta. Kveðja, Jóhanna María, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. 862-8209.

Reykjavík:

Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu mun hittast miðvikudagskvöldið 1. febrúar klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, í fundarsal á 4. hæð.

Hópur foreldra barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast miðvikudagskvöldið 1. febrúar klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, fundarherbergi 4. hæð.

Vestmannaeyjar

Einhugur, foreldrar Eyjabarna á einhverfurófi, ætla að hittast þriðjudaginn 7. febrúar. Staðsetning og tími auglýst síðar á heimasíðunni http://einhugur.blog.is/ , og á facebook síðunni Einhugur foreldrafélag.

Allir eru velkomnir í hópastarfið. Ekki þarf að tilkynna þátttöku.

   

Foreldrahópur Akureyri

Akureyri

Foreldrahópur á Akureyri ætlar að hittast mánudaginn 16. janúar klukkan 20.00 í húsnæði Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg.

 

Foreldrahópar Akranesi og Vestmannaeyjum

Akranes

Foreldrahópur einhverfra barna á Akranesi mun hittast miðvikudagskvöldið 11. janúar í Fjöliðjunni Dalbraut Akranesi. Við hittumst klukkan 20:30. Nánari upplýsingar veitir Elsa Lára í síma 615-2177 eða á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Vestmannaeyjar

Einhugur, foreldrar Eyjabarna á einhverfurófi, ætla að hittast heima hjá formanni, Guðrúnu, að Búhamri 32, þriðjudaginn 10. janúar klukkan 20:00. Sjá nánar á heimasíðunni http://einhugur.blog.is/ , og á facebook síðunni Einhugur foreldrafélag.

Allir eru velkomnir í hópastarfið. Ekki þarf að tilkynna þátttöku.

   

Foreldrahópar Reykjavík og Reykjanesi

Reykjavík:

Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu mun hittast miðvikudagskvöldið 4. janúar klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, í fundarsal á 4. hæð.

Hópur foreldra barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast miðvikudagskvöldið 4. janúar klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, fundarherbergi 4. hæð.

Reykjanes:

Hópur foreldra á Reykjanesi mun hittast fimmtudagskvöldið 5. janúar kl. 20:30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ. Vonumst til að sjá sem flesta. Kveðja, Jóhanna María, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. 862-8209.

Allir eru velkomnir í hópastarfið. Ekki þarf að tilkynna þátttöku.

 

Skrifstofan lokuð milli jóla og nýárs

Skrifstofa Umsjónarfélags einhverfra verður lokuð milli jóla og nýárs en opnar aftur á nýju ári, 4. janúar. Ef þörf er á er hægt að hafa samband við Sigrúnu í síma 897 2682 eða senda tölvupóst á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

   

Samfélagsstyrkir Landsbankans

25. nóvember 2011 - Fréttir og tilkynningar

Landsbankinn veitir 15 milljónir í samfélagsstyrki
Landsbankinn veitti í dag 15 milljónir króna í samfélagsstyrki í fyrsta sinn úr nýjum Samfélagssjóði bankans. Veittir voru þrjátíu og fimm styrkir, fimm styrkir að upphæð 1 milljón króna hver, tíu styrkir að fjárhæð 500 þúsund krónur og tuttugu styrkir að fjárhæð 250 þúsund krónur. Ríflega 500 umsóknir bárust um styrki úr Samfélagssjóði Landsbankans. Umsjónarfélag einhverfra hlaut 1 milljón króna í styrk vegna sumarnámskeiða félagsins.

Samfélagsstyrkjunum er ætlað að styðja við samfélagsmál af ýmsum toga, t.d. verkefni mannúðarsamtaka og líknarfélaga, verkefni á sviði menntamála, rannsókna og vísinda, verkefni á sviði menningar og lista, forvarnar- og æskulýðsstarf og sértæka útgáfustarfsemi. Fyrirhugað er að úthluta samfélagsstyrkjum árlega.

 

Jólafundur Einhugs foreldrafélags Eyjabarna á einhverfurófi 17. desember

Við í Vestmannaeyjum ætlum að hafa jólafund á Café Varmó, laugardaginn 17. des. 2011 kl. 13. Við erum svo með mánaðarlega fundi, stefnum á fyrsta þriðjudag hvers mánaðar en nánari upplýsingar verða á facebook síðunni okkar (Einhugur foreldrafélag) og á einhugur.blog.is

Bestu kveðjur Guðrún J

   

Jólafundur Umsjónarfélags einhverfra

Jólafundur Umsjónarfélagseinhverfra verður haldinn miðvikudaginn 7. desember klukkan 20:00-22:00 að Háaleitisbraut 13. 4. hæð. Þetta er spjallfundur með léttu yfirbragði, piparkökum, gosi og konfekti. Fundurinn kemur í stað foreldrahópa í desember. Á fundinum ætlum við að sýna stuttmyndir sem unglingarnir okkar gerðu á sumarnámskeiðum félagsins.

Fundurinn er öllum opinn.

   

Ábendingahnappur frá Barnaheill