Einhverfa.is

Þú ert hérna: Fréttir Fréttasafn
Villa
  • Villa varð í hleðslu gagnamiðlara.


Fræðslufundur 25. febrúar

Opinn fræðslufundur hjá

Umsjónarfélagi einhverfra

FUNDAREFNI:

Aðferðir við þjálfun og kennslu barna með einhverfu í grunnskólum

Fyrirlesari: Guðný Stefánsdóttir, þroskaþjálfi og ráðgjafi í atferlismeðferð.

Fjallað verður um aðferðir við þjálfun og kennslu barna með einhverfu í fyrstu bekkjum grunnskóla. Kynnt verður meistaraprófsrannsókn þar sem aflað var upplýsinga um hvaða aðferðir væru notaðar við kennslu og þjálfun barna með einhverfu í 1. bekk grunnskóla. Farið verður yfir hversu sterk vísindaleg rök liggja að baki þeim aðferðum sem notaðar voru og fyrirkomulag þjálfunar og kennslu.

Fundartími: Miðvikudaginn 25. febrúar,

klukkan 20:00-22:00.

Fundarstaður: Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Fundurinn er öllum opinn.

 

Fræðslufundur 18. febrúar

Opinn fræðslufundur hjá Umsjónarfélagi einhverfra

FUNDAREFNI:

-Kynning á stofnun þekkingarhópa

-Stofnun þekkingarhóps um Rapid Prompting method

Á fundinum verður fyrsti þekkingarhópurinn stofnaður. Þekkingarhópurinn verður um "Rapid Prompting Method" og skyldar aðferðir. Þessi aðferð vakti athygli í myndinni Sólskinsdrengurinn.

Margrét Dagmar Ericsdóttir mun mæta á þennan fund og deila með okkur sinni reynslu sem leikmaður og benda okkur á hvar hægt sé að fá frekari upplýsingar.

Sjá nánar hér að neðan.

Fundartími: Miðvikudaginn 18. febrúar,

klukkan 20:00.

Fundarstaður: Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Fundurinn er öllum opinn.

Þekkingarsetur um einhverfu

Umsjónarfélag einhverfra hefur á undanförnum árum stuðlað á margvíslegan hátt að því að auka fagþekkingu á einhverfu á Íslandi. Þetta hefur félagið gert með útgáfu bóka, tímarita, fræðslufundum, bókasafni og styrkja til fræðsluferða svo fátt eitt sé nefnt. Stjórn félagsins hefur ákveðið að bæta enn frekar í þennann þátt í rekstri félagsins og undir yfirskrift "Þekkingarsetur um einhverfu". Á næstu vikum verður því lögð áhersla á að styrkja bókasafn félagsins, styrkja útgáfu á myndböndum, bókum og bæklingum og stofnun þekkingarhópa um þau málefni sem brenna á fólki.

Þekkingarhópar

Miðvikudaginn 18. febrúar kl. 20:00 verður umgjörð sem félagið mun búa þekkingarhópum kynnt. Þeir sem hafa áhuga á stofnun þekkingarhópa um einhver málefni eru boðnir velkomnir. Þekkingarhópar verða öllum opnir, fagfólki, aðstandendum og öðrum.

Á fundinum 18. febrúar verður fyrsti þekkingarhópurinn stofnaður. Þekkingarhópurinn verður um "Rapid Prompting Method" og skyldar aðferðir. Þessi aðferð vakti athygli í myndinni Sólskinsdrengurinn. Augu margra opnuðust fyrir því að mögulega væri hægt að gera eitthvað meira fyrir að minnsta kosti einhverja mikið fatlaða einstaklinga. Margar spurningar vöknuðu einnig um aðferðafræðina. Margrét Dagmar Ericsdóttir mun mæta á þennann fund og deila með okkur sinni reynslu sem leikmaður og benda okkur á hvar hægt sé að fá frekari upplýsingar.

 

Félagsstarf fyrir unglinga 13-18 ára

Þriðjudaginn 17. febrúar klukkan 18:00-20:00 ætlum við að hittast í Þróttheimum, Holtavegi 11, 104 Rekjavík, 2. hæð (húsnæði ÍTR beint á móti þar sem Jói Fel var með bakarí) og mun unglingastarfið fara fram þar. Gott væri að fá foreldrana með svo þau geti kynnt sér aðstöðuna.


Með kveðju, Sigrún Birgisdóttir, skrifstofu Umsjónarfélags einhverfra.

   

Sérgáfur einhverfra nýtast í vinnu

Í Fréttablaðinu í dag er sagt frá því hvernig tekist hefur að nýta sérgáfur einhverfra í dönskum hátæknifyrirtækjum. Thorkil Sonne stofnandi Specialisterne hefur þjálfað stóran hóp einstaklinga á einhverfurófinu og fengið verkefni fyrir helming þeirra við prófanir og önnur tæknistörf í Danmöku. Hægt er að lesa greinina á netinu.

Umsjónarfélag einhverfra ákvað á stjórnarfundi 20. janúar 2009 að stuðla að því að svona fyrirtæki verði sett upp hér á landi. Til þess að það takist að setja upp svona fyrirtæki þarf samstarf og vilja fyrirtækja á markaðnum, aðstandenda einstaklinga á einhverfurófi, ríkis og sveitafélaga. Stofnun svona fyrirtækis nú mun skapa störf fyrir fleirra fagfólk og fyrstu einstaklingarnir sem ljúka þjálfun gætu farið að taka þátt í atvinnumarkaðnum þegar kreppan, sem nú fer að nálgast hámark fer að líða undir lok.

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í þessu verkefni, fyrirtæki, aðstandur, sveitarfélög, fagfólk geta haft samband við Hjört Grétarsson, formann Umsjónarfélags einhverfra Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Undirbúningsfundur fyrir hópastarf unglinga

Þriðjudagskvöldið 20. janúar klukkan 20:00 ætlum við að hittast á Háaleitisbraut 13, 4. hæð til að ræða stofnun unglingahóps. Þeir foreldrar sem telja að börn sín muni notfæra sér slíkt starf eru beðnir að mæta því við þurfum að fá hugmyndir frá ykkur um starfið. Einnig væri hugsanlegt að einhverjir unglinganna hafi skoðanir á málinu og gætu þeir þá komið með foreldrunum. Við erum að hugsa um aldurshópinn frá ca. 13 til 18 ára. Fulltrúi frá ÍTR mun mæta og einnig Laufey I. Gunnarsdóttir einhverfuráðgjafi og Jarþrúður Þórhallsdóttir foreldraráðgjafi.

   

Viðtal um atvinnumál einhverfra á Rás 1

Viðtal við Hjört Grétarsson formann Umsjónarfélag einhverfra um atvinnumál einhverfra í Samfélaginu í nærmynd

http://dagskra.ruv.is/ras1/4416229/2009/01/13/

 

Atvinnumál einhverfra

Atvinnumál einhverfra í upplýsingatækni

Umsjónarfélag einhverfra í samvinnu við SKÝ heldur Hádegisverðarfund á Grand Hótel föstudaginn 16. janúar nk. kl. 12 - 14


Í tilefni af útgáfu heimildarmyndarinnar „Sólskinsdrengurinn" mun Skýrslutæknifélag Íslands ásamt Umsjónarfélagi einhverfra og aðstandendum myndarinnar standa fyrir hádegisverðarfundi um stöðu einhverfra í atvinnulífinu. Aðal fyrirlesari verður danski frumkvöðullinn Thorkil Sonne en hann hefur hlotið heiðursverðlaun danska Upplýsingatæknifélagsins á árinu 2008 fyrir störf sín í þágu einhverfra. Thorkil hefur með góðum árangri nýtt, þjálfað og skapað verðmæt störf fyrir fólk með einhverfu í upplýsingatækni. Mikill fengur er, sérstaklega nú í kreppunni, að fá einstakling sem finnur tækifæri þar sem aðrir sjá aðeins vandamál. Torkil kemur fram í íslensku heimildarkvikmyndinni Sólskinsdrengurinn sem frumsýnd er 9. janúar 2009.
Dr. Evald Sæmundsen sviðstjóri fagsviðs einhverfra á Greiningar og ráðgjafastöð ríkisins útskýrir mikla breidd einhverfurófsins, styrkleika, veikleika og greind. Á síðustu tveimur árum hafa greinst vel á þriðja hundruð einstaklinga með einhverfu á Íslandi. Þekking á einhverfu hefur aukist mikið síðastliðin ár, en með þekkingu og skilningi er hægt að auka lífsgæði einhverfra og nýta styrkleika þeirra í leik og starfi.
Árni Már Björnsson verkefnisstjóri hjá Vinnumálastofnun og umsjónarmaður með flutningi atvinnumála fatlaðra til Vinnumálastofnunar fer yfir mögulegan stuðning stofnunarinnar við einhverfa einstaklinga og við fyrirtæki. Stofnuninn er með ýmis úrræði sem hægt er að nýta sér til að koma af stað nýrri starfsemi.

Dagskrá

12:00 Skráning fundargesta
12:15 Setning fundarins og hádegisverður borinn fram
12:40 Dr. Evald Sæmundsen, kynning á einhverfurófi
12:55 Thorkil Sonne, Specialisterne (kynning á ensku)
13:30 Árni Már Björnsson, stuðningur við atvinnuþátttöku
13:45 Umræður
13:55 Fundi slitið
Fundarstjóri er Hjörtur Grétarsson upplýsingatæknistjóri Reykjavíkurborgar

Undirbúningsnefnd skipa: Hjörtur Grétarsson upplýsingatæknistjóri Reykjavíkurborgar og Magnús Hafliðason frá Símanum

Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský og félagsmenn Umsjónarfélags einhverfa er 3.800 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn er 4.800 kr.

Skráðu þig núna með því að senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða hringja í síma 553 2460.

Bestu kveðjur,
Skýrslutæknifélag Íslands
Engjateig 9
105 Reykjavík
http://www.sky.is/
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

   

Bíómyndin Sólskinsdrengurinn

Stórvirkið, bíómyndin Sólskinsdrengurinn verður frumsýnd 9. janúar 2009. Þessi mynd er um leit móður að öllu sem getur hjálpað einhverfum syni hennar. Í leit sinni ferðast hún víða um heim og ræðir við helstu sérfræðinga heimsins í málefnum einhverfa.

Opnaður hefur verið bjartur og fallegur vefur myndarinnar. http://www.solskinsdrengurinn.is/

Í tengslum við myndina munu nokkrir aðila sem fram koma í myndinni koma til landsins. Umsjónarfélag einhverfra, í samvinnu við framleiðendur myndarinnar og Skýrslutæknifélag Íslands munu verða með hádegisverðarfund 16. janúar 2009 þar sem Torkil Sonne, stofnandi www.specialisterne.dk mun segja okkur hvernig hann hefur búið til hátæknifyrirtæki þar sem 75% einstaklinganna eru einhverfir!

 

Foreldrahópar á landsbyggðinni

Akureyri:

Hópastarfið á Akureyri hefst í kringum miðjan janúar, nánar auglýst síðar.

Með jólakveðju, Elín M. Lýðsdóttir

Suðurnesjum:

Hópur foreldra á Reykjanesi mun hittast fimmtudaginn 8. janúar kl. 20,30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ. Vonumst til að sjá sem flesta.

Kveðja, Jóhanna María, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , 862-8209

Suðurlandi:
Fyrsti fundur hópastarfsins á Suðurlandi eftir áramót er fimmtudaginn 8. janúar kl. 19:30, að Eyravegi 25, Selfossi.

Með jólakveðju, Aðalbjörg Skúladóttir s: 820- 6882

   

Umsjónarfélagið komið á Facebook

Umsjónarfélag einhverfra er orðið tæknivæddara, kominn með Facebook hóp! Við hvetjum alla til að skrá sig í þann hóp og vera dugleg að taka þátt í að stækka hópinn með því að benda þeim sem hafa áhuga á málefninu eða setja inn efni!

http://www.facebook.com/group.php?gid=50753339967

 

Jólafundur umsjónarfélagsins

Fimmtudaginn 4. desember klukkan 20-22 verður opinn félagsfundur hjá Umsjónarfélagi einhverfra. Jóna Á. Gísladóttir mun koma og lesa upp úr bók sinni "SÁ EINHVERFI OG VIÐ HIN". Einnig verða rædd þau málefni sem helst brenna á fólki. Fundurinn verður með jólalegu yfirbragði, jólasmákökur, konfekt og gos. Hópastarfið í Reykjavík fellur niður í desember en þessi fundur mun verða spjallfundur með svipuðu yfirbragði og hópastarfið.
Fundarstaður: Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Fundurinn er öllum opinn.

Stjórnin.

   

Hópastarf í Nóvember

Akureyri:

Ákveðið hefur verið að stofna stuðningshóp á Akureyri fyrir foreldra barna með fötlun á einhverfurófi. Mun hópurinn starfa með svipuðum hætti og aðrir foreldrahópar hjá Umsjónarfélagi einhverfra. Stofnfundurinn verður haldinn mánudaginn 3. nóvember, klukkan 20:00 hjá Þroskahjálp, Kaupangi við Mýrarveg. Hópurinn mun svo hittast reglulega fyrsta mánudag í mánuði. Nánari upplýsingar veita Elín M. Lýðsdóttir, mailto: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og Sigrún Birgisdóttir, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , sími: 8972682.

Reykjavík:

Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu mun hittast miðvikudagskvöldið 5. nóvember klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.

Hópur foreldra barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast fimmtudagskvöldið 6. nóvember klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.

Út úr skelinni, hópur eldri einstaklinga með ódæmigerða einhverfu og Aspergersheilkenni (18 ára og eldri) hittist næst sunnudaginn 9. nóvember, klukkan 16:00, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. (Láta vita af þátttöku til Laufeyjar Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ). Sá hópur hittist svo á tveggja vikna fresti á Háaleitisbrautinni.

Suðurnesjum:

Hópur foreldra á Suðurnesjum mun hittast fimmtudaginn 6. nóvember kl. 20,30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ. Vonumst til að sjá sem flesta.

Kveðja, Jóhanna María, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , 862-8209

Selfossi:

Næsti fundur foreldrahópsins á Selfossi verður fimmtudaginn 6. nóvember kl. 19:30, að Eyravegi 25, Selfossi.

Kveðja, Aðalbjörg Skúladóttir.

 

Fréttabréf 16. Október 2008

Opinn fræðslufundur hjá Umsjónarfélagi einhverfra:  

FUNDAREFNI:  UNGLINGSÁRIN OG RASKANIR Á EINHVERFURÓFI  

Fjallað verður um  hvaða áhrif unglingsárin hafa á einstaklinga með röskun á einhverfurófi.

Fyrirlesari: Laufey I. Gunnarsdóttir, einhveruráðgjafi á fagsviði einhverfu  á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.

   
Fundartími: Þriðjudaginn 21. október, 
klukkan    20:00.

Fundarstaður: Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

                            Fundurinn er öllum opinn.


FORELDRAHÓPUR Á AKUREYRI:

Ákveðið hefur verið að stofna foreldrahóp á Akureyri nú í nóvember. Stofnfundurinn verður haldinn mánudaginn 3. nóvember, klukkan 20:00 hjá Þroskahjálp, Kaupangi við Mýrarveg.  Hópurinn mun svo hittast reglulega fyrsta mánudag í mánuði.  Nánari upplýsingar veita Elín  M. Lýðsdóttir, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.   og  Sigrún  Birgisdóttir, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .


HÓPASTARF  Í  REYKJAVÍK

Út úr skelinni, hópur eldri einstaklinga með ódæmigerða einhverfu og Aspergersheilkenni (18 ára og eldri) hittist næst sunnudaginn 26. október. klukkan 16:00, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð.  (Láta vita af þátttöku til Laufeyjar  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.   ). Sá hópur hittist svo á tveggja vikna fresti á Háaleitisbrautinni.

Foreldrahópar:

Hópur foreldra fullorðinna einstaklinga með fötlun á einhverfurófi mun hittast mánudagskvöldið 27. október klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.

Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu mun hittast   miðvikudagskvöldið 5. nóvember klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð. 

Hópur foreldra barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittastfimmtudagskvöldið 6. nóvember klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.


Reykjavíkurmaraþon Glitnis:

Í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis í sumar söfnuðust  503.500 krónur fyrir Umsjónarfélag einhverfra.  Umsjónarfélagið vill þakka þeim fjölmörgu sem hétu á eða hlupu fyrir félagið í Reykjavíkurmaraþoninu.  Ykkar framlag var stórt og kemur sér vel í starfi félagsins.  Vonum við að sem flestir taki þátt á næsta ári.

Einnig voru starfsmenn Alcan á Íslandi hf. með hlaupalið sem hljóp fyrir Umsjónarfélagið.   Styrkur þeirra til félagsins var 100.000 krónur.  Þökkum við þeim kærlega fyrir framlagið.

                        Stjórn Umsjónarfélags einhverfra.


Foreldrahópar á landsbyggðinni

Tengiliðir:

Reykjanesi: Jóhanna María Gylfadóttir, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Egilsstöðum: Þorbjörg Ásbjörnsdóttir, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Vestmannaeyjum: Guðrún Jónsdóttir, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Akureyri: Elín M. Lýðsdóttir, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Selfossi: Aðalbjörg skúladóttir, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og Páll B. Ingimarsson, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


Sólskinsdrengur:

Frumsýning myndarinnar "Sólskinsdrengur" frestast fram í janúar 2009. Dagsetning verður auglýst síðar.

   

Hópastarf á og Reykjanesi og Selfossi

Nú fer foreldrahópur á Suðurnesjum aftur af stað.Fyrsti fundur vetrarins verður haldinn fimmtudaginn 2. október kl. 20,30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ. Vonumst til að sjá sem flesta. Kveðja, Jóhanna María Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. 862-8209

Nú er farið af stað foreldrastarf á Suðurlandi. Hópur foreldra þar mun hittast fimmtudaginn 2. október klukkan 19:30-21:30, að Eyravegi 25, Selfossi. Nánari upplýsingar veita Aðalbjörg Skúladóttir, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og Páll B. Ingimarsson, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Fjölsmiðjan

Opinn fræðslufundur hjá Umsjónarfélagi einhverfra

FUNDAREFNI:

Kynning á starfsemi Fjölsmiðjunnar

Í Fjölsmiðjunni í Kópavogi fer fram verkþjálfun og fræðsla fyrir fólk á aldrinum 16 - 24 ára. Þar gefst fólki tækifæri til að þjálfa sig fyrir almennan vinnumarkað eða áframhaldandi nám. Töluvert er um að ungmenni með fötlun á einhverfurófi fari í þjálfun hjá Fjölsmiðjunni.

Þorbjörn Jensson, forstöðumaður Fjölsmiðjunnar mun kynna starfsemina.

Fundartími: Fimmtudagurinn 25. september, klukkan 20:00.

Fundarstaður: Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Fundurinn er öllum opinn.

   

Stuðningshópur á suðurlandi

Til stendur að stofna stuðningshóp á Suðurlandi fyrir foreldra barna með fötlun á einhverfurófi. Mun hópurinn starfa með svipuðum hætti og aðrir foreldrahópar hjá Umsjónarfélagi einhverfra, en þeir hittast einu sinni í mánuði þar sem foreldrar spjalla saman um það sem þeir eru að takast á við. Oft hafa fundist lausnir á vandamálum og komið fram hugmyndir sem hafa getað nýst mörgum á þessum kvöldstundum. Ákveðið hefur verið að hafa stofnfundinn þriðjudaginn 16. september frá klukkan 20 til 22. Fundurinn verður haldinn að Eyravegi 25 Selfossi. Ef þið þurfið nánari upplýsingar þá endilega sendið tölvupóst á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

   

Ábendingahnappur frá Barnaheill