Einhverfa.is

Þú ert hérna: Fréttir Fréttasafn
Villa
  • Villa varð í hleðslu gagnamiðlara.


Kynning á sumarnámskeiði fyrir unglinga

Haldin verður kynning á samstarfi Háskóla Íslands og Umsjónarfélags einhverfra um þróun sumarnámskeiða fyrir unglinga á einhverfurófinu og þekkingarsafni til stuðnings ýmissa verkefna fyrir samfélag einhverfra.Kynningin fer fram í sanum “Bratti” Menntavísindasviðs H.Í. við Stakkahlíð, þann 5. febrúar frá kl. 12-15:00.
Dagskráin er svohljóðandi:

12:00 Pistlar og umræður

Hvati að stofnun þekkingarhópsins “Minn Styrkur” – Helgi Þór Jónsson, Umsjónarfélagi einhverfra
Umgjörð og efnistök námskeiðanna – Guðný Björk Hallgrímsdóttir og Svanborg Guðgeirsdóttir, þroskaþjálfanemar
Uppbygging á þekkingarsafni – Arnar Jónsson, Helga Sigurðardóttir og Valentína H. Michelsen, þroskaþjálfanemar
13:00 Sýning á heimildarmyndinni “Sólskinsdrengurinn – Einhverfa í nýju ljósi“

14:30 Umræður, dagskrárlok

Kynningin er hugsuð jafnt fyrir foreldra, fagfólk og nemendur Menntavísindasviðs, þátttaka ókeypis.

Sjá nánar um kynningardaginn og ýmislegt fleira um verkefnið: http://minnstyrkur.wordpress.com/2010/01/26/minn-styrkur-sumarnamskeid/
Þekkingarhópurinn Minn Styrkur,


Arndís

Jóhannes Már
Helgi Þór

Sólveig Ragnarsdóttir

 

Hópastarf í febrúar

Reykjavík: Hópur foreldra eldri barna með einhverfu í grunnskólum/framhaldsskólum mun hittast þriðjudagskvöldið 2. febrúar klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13. 2. hæð.

Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu í grunnskólum/framhaldsskólum mun hittast miðvikudagskvöldið 3. febrúar klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.

Hópur foreldra yngri barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast fimmtudagskvöldið 4. febrúar klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.

Út úr skelinni, hópur eldri einstaklinga með ódæmigerða einhverfu og Aspergersheilkenni (18 ára og eldri) hittist næst sunnudaginn 7. febrúar, klukkan 15:15-17.15, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Sá hópur hittist svo á tveggja vikna fresti á Háaleitisbrautinni. Allir velkomnir.

Akureyri: Foreldrahópur á Akureyri ætlar að hittast þriðjudaginn 9. febrúar klukkan 20:00 í húsnæði Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg. Hulda sem er kennari við sérdeildina í Síðuskóla ætlar að koma með CAT kassann til að kynna hvernig hann er nýttur. Kveðja, Elín M. Lýðsdóttir, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Reykjanes: Hópur foreldra á Reykjanesi mun hittast fimmtudagskvöldið 4. febrúar kl. 20,30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ. Vonumst til að sjá sem flesta. Kveðja, Jóhanna María, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , 862-8209

Suðurland: Foreldrar á Suðurlandi ætla að hittast fimmtudagskvöldið 4. febrúar klukkan 19:30-21:30, í húsnæði Svæðisskrifsstofu um málefni fatlaðra, Eyravegi 25, Selfossi. Kveðja, Aðalbjörg Skúladóttir, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Fræðslufundur 27. janúar

Opinn fræðslufundur hjá

Umsjónarfélagi einhverfra 27. janúar

FUNDAREFNI:

Áhugamál stúlkna með Aspergersheilkenni og svipaðar raskanir á einhverfurófi

Kynning á niðurstöðum Meistararannsóknar. Tilgangur rannsóknarinnar var að fá innsýn í áhugamál stúlkna með Aspergersheilkenni og svipaðar raskanir á einhverfurófi, hvaða þýðingu áhugamálin hefðu fyrir stúlkurnar og áhrif þeirra á nánasta umhverfi stúlknanna, nám, félagsleg samskipti, sjálfsmynd og líðan.

Fyrirlesari: Laufey I. Gunnarsdóttir, þroskaþjálfi og einhverfuráðgjafi á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.

Fundartími: Miðvikudaginn 27. janúar, klukkan 20:00.

Fundarstaður: Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Fundurinn er öllum opinn

   

Skrifstofan lokuð fram til 6. janúar

Skrifstofa Umsjónarfélags einhverfra verður lokuð fram yfir áramót. Opnum aftur 6. janúar.

Með jóla- og nýárskveðju, Sigrún Birgisdóttir.

 

Hópastarf í janúar

Reykjavík:

Hópur foreldra eldri barna með einhverfu í grunnskólum/framhaldsskólum mun hittast þriðjudagskvöldið 5. janúar klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13. 2. Hæð ATH - nýr hópur

Hópur foreldra yngri barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast fimmtudagskvöldið 7. janúar klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.

Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu í grunnskólum/framhaldsskólum mun hittast miðvikudagskvöldið 13. janúar klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.

Út úr skelinni, hópur eldri einstaklinga með ódæmigerða einhverfu og Aspergersheilkenni (18 ára og eldri) hittist næst sunnudaginn 10. janúar, klukkan 15:15-17.15, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Sá hópur hittist svo á tveggja vikna fresti á Háaleitisbrautinni. Allir velkomnir.

Akureyri: Foreldrahópur á Akureyri ætlar að hittast mánudaginn 11. janúar klukkan 20:00 í húsnæði Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg. Kveðja, Elín M. Lýðsdóttir, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Reykjanes: Hópur foreldra á Reykjanesi mun hittast fimmtudagskvöldið 7. janúar kl. 20,30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ. Vonumst til að sjá sem flesta. Kveðja, Jóhanna María, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , 862-8209

Suðurland: Foreldrar á Suðurlandi ætla að hittast fimmtudagskvöldið 7. janúar klukkan 19:30-21:30, í húsnæði Svæðisskrifsstofu um málefni fatlaðra, Eyravegi 25, Selfossi. Kveðja, Aðalbjörg Skúladóttir, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

   

Styrkur frá Vatnsendaskóla

Undanfarin tvö ár hafa nemendur og starfsfólk í Vatnsendaskóla gefið andvirði pakka (sem annars hefði verið notað í pakkaskiptum) til góðgerðarmála. Ákveðið var að ágóði söfnunarinnar í ár, kr. 67.000, rynni til unglingahóps Umsjónarfélags einhverfra. Viljum við þakka nemendum og kennurum Vatnsendaskóla innilega fyrir styrkinn sem mun efla starfið hjá unglingunum okkar.

 

Opinn jólafundur 3. desember

Fimmtudaginn 3. desember klukkan 20-22 verður opinn félagsfundur hjá Umsjónarfélagi einhverfra. Fundurinn verður með jólalegu yfirbragði, jólasmákökur, konfekt og gos. Verða þar rædd þau málefni sem helst brenna á fólki. Hópastarfið í Reykjavík fellur niður í desember en þessi fundur mun verða spjallfundur með svipuðu yfirbragði og hópastarfið.

Fundarstaður: Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Fundurinn er öllum opinn.

Stjórnin.

   

Hópastarf í desember

Akureyri:

Foreldrahópur á Akureyri ætlar að hittast þriðjudaginn 8. desember klukkan 20:00 í húsnæði Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg.

Kveðja, Elín M. Lýðsdóttir, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Reykjanes:

Hópur foreldra á Reykjanesi mun hittast fimmtudagskvöldið 3. desember kl. 20,30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ. Vonumst til að sjá sem flesta.

Kveðja, Jóhanna María, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , 862-8209

Suðurland:

Foreldrar á Suðurlandi ætla að hittast fimmtudagskvöldið 3. desember klukkan 19:30-21:30, í húsnæði Svæðisskrifsstofu um málefni fatlaðra, Eyravegi 25, Selfossi. Boðið verður upp á konfekt og e.t.v. eitthvað fleira skemmtilegt.

Kveðja, Aðalbjörg Skúladóttir, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Reykjavík:

Í stað foreldrahópa í desember verður Jólafundur með léttu spjalli fimmtudagskvöldið 3. desember klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Konfekt, smákökur, gos og kakó.

Út úr skelinni, hópur eldri einstaklinga með ódæmigerða einhverfu og Aspergersheilkenni (18 ára og eldri) hittist næst sunnudaginn 06. desember, klukkan 15:15, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Allir velkomnir.

 

Fræðslufundur 18.11.09

Opinn fræðslufundur hjá Umsjónarfélagi einhverfra

FUNDAREFNI:

Beiting nauðungar gagnvart fötluðu fólki

Vandi og viðfangsefni

Í fyrirlestrnum verða tekið til umfjöllunar álitamál sem upp koma þegar þjónustuþegar með fötlun eru beittir nauðung af starfsfólki, sérstaklega á heimilum sínum. Þó að slík inngrip séu með hagsmuni einstaklingsins í huga er ótalmargt sem þarf skoðunar við. Aðrar þjóðir hafa sumar hverjar sett lög um þetta efni og hérlendis hefur verið unnin nokkurt starf til að átta sig á eðli, umfangi og leiðum til úrbóta.

Fyrirlesari: Friðrik Sigurðsson. Friðrik er þroskaþjálfi að mennt og hefur síðustu 15 ár starfað sem framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar. Hann hefur lengi fylgst með umræðu um þetta efni erlendis sérstaklega í Noregi og fjallað um það í kennslu á þroskaþjálfabraut við Háskóla íslands og víðar.

Fundartími: Miðvikudaginn 18. nóvember, klukkan 20:00.

Fundarstaður: Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Fundurinn er öllum opinn.

   

Hópastarf í nóvember

Akureyri:
Foreldrahópur á Akureyri ætlar að hittast mánudaginn 2. nóvember klukkan 20:00 í húsnæði Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg.

Kveðja, Elín M. Lýðsdóttir, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


Reykjanes:

Hópur foreldra á Reykjanesi mun hittast fimmtudagskvöldið 5. nóvember kl. 20,30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ. Vonumst til að sjá sem flesta.

Kveðja, Jóhanna María, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , 862-8209

Suðurland:

Foreldrar á Suðurlandi ætla að hittast fimmtudagskvöldið 5. nóvember klukkan 19:30-21:30, í húsnæði Svæðisskrifsstofu um málefni fatlaðra, Eyravegi 25, Selfossi.

Kveðja, Aðalbjörg Skúladóttir, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Reykjavík:

Hópur foreldra eldri barna með einhverfu í grunnskólum/framhaldsskólum mun hittast þriðjudagskvöldið 3. nóvember klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13. 2. Hæð ATH - nýr hópur

Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu í grunnskólum/framhaldsskólum mun hittast miðvikudagskvöldið 4. nóvember klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.

Hópur foreldra yngri barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast fimmtudagskvöldið 5. nóvember klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.

Út úr skelinni, hópur eldri einstaklinga með ódæmigerða einhverfu og Aspergersheilkenni (18 ára og eldri) hittist næst sunnudaginn 08. nóvember, klukkan 16:00, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Sá hópur hittist svo á tveggja vikna fresti á Háaleitisbrautinni. Allir velkomnir.

 

Fundur 29.10.2009 - Sérfræðingarnir

Fundur þekkingarhóps um Specialisterne.
Þekkingarhópur um Specialisterne, atvinnuúrræði fyrir einhverfa einstaklinga að fyrirmynd Specialisterne í Danmörku var stofnaður 30. mars 2009. 7 manna hópur hefur í sumar og haust verið að vinna að því að kanna til hlýtar hvort það sé möguleiki á að stofna svona fyrirtæki hérlendis. Unnin hefur verið úttekt og viðræður eru í gangi um áframhald.

Fimmtudaginn 29. október verður fundur þar sem tveir fulltrúar kynna stöðu málsins. Fundarstaðurinn er Háaleitisbraut 13, 4. hæð og hefst fundurinn kl. 20:00. Fundurinn er öllum opinn.

Áhugasamir geta einnig kynnt sér vef undirbúningshópsins http://www.sérfræðingarnir.is/ og sett sig þar í samband við hópinn.

Með kveðju, Hjörtur Grétarsson

   

Fræðslufundur 21. október 2009

Opinn fræðslufundur hjá Umsjónarfélagi einhverfra

FUNDAREFNI:

Baráttan fyrir börnin

Karen Ralston mun fjalla um bók sína „Baráttan fyrir Börnin". Af hverju hún skrifar bók um einhverfu. Hvað reyndist vel í meðferð sona hennar, t.d. breytt mataræði, atferlisþjálfun, bætiefni ofl.

Sonur hennar, Nikulás Árni sem greindur var með einhverfu 4. ára segir frá reynslu sinni og upplifun á því að vera með einhverfu. Nikulás er í dag 16 ára og er að klára 10. bekk án stuðnings eða sérkennslu.

Fjölbreytt mataræði og hollusta

Borghildur Sigurbergsdóttir, næringarráðgjafi mun fjalla um mikilvægi hollustu og fjölbreytni í mataræði og hvað þarf að hafa í huga þegar verulegar breytingar eru gerðar á mataræði. (Glærur komnar inn undir liðnum "Glærur frá fræðslufundum)

Fundartími: Miðvikudaginn 21. október, klukkan 20:00.

Fundarstaður: Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Fundurinn er öllum opinn.

 

Einhverfa - Hvað er til ráða?

Á skrifstofu Umsjónarfélags einhverfra er til sölu fræðslumynd á dvd um úrræði sem í boði eru fyrir börn og unglinga með röskun á einhverfurófi. Sérfræðingar frá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins fjalla um greiningarferlið og lýsa helstu þjálfunaraðferðum í leik- og grunnskólum. Tekin eru viðtöl við foreldra og sýndar myndir af börnum við nám og leik. Einnig er greint frá starfsemi Umsjónarfélags einhverfra. Verðið á disknum er kr. 1500,-til einstaklinga, kr. 4.900 til skóla og kr. 5.900 til bókasafna. Þessi mynd var sýnd á aðalfundi félagsins í vor.

   

RPM fimmtudagskvöldið 8. október

Fimmtudagskvöldið 8.október klukkan 20:00-22:00 mun þekkingarhópur um RPM (Rapid Prompting Method) koma saman að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Ásta Birna mun segja frá ferð sinni til Austin, TX í sumar þar sem hún sótti þjálfara námskeið í RPM aðferðinni. Hún mun einnig segja frá því hvernig gekk með einhverfan son hennar sem var með í för og sótti kennslu hjá Somu Mukhopadhyay sem er höfundur að þessari kennlsuaðferð. Allir velkomnir.

 

Hópastarf í október

Reykjanes:
Hópur foreldra á Reykjanesi mun hittast fimmtudagskvöldið 1. október kl. 20,30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ. Vonumst til að sjá sem flesta.

Kveðja, Jóhanna María, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , 862-8209

Suðurland:

Foreldrar á Suðurlandi ætla að hittast fimmtudagskvöldið 1. október klukkan 19:30-21:30, í húsnæði Svæðisskrifsstofu um málefni fatlaðra, Eyravegi 25, Selfossi.

Kveðja, Aðalbjörg Skúladóttir, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Reykjavík:

Hópur foreldra yngri barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast fimmtudagskvöldið 1. október klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.

Hópur foreldra eldri barna með einhverfu í grunnskólum/framhaldsskólum mun hittast þriðjudagskvöldið 6. október klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13. 2. Hæð ATH - nýr hópur

Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu í grunnskólum/framhaldsskólum mun hittast miðvikudagskvöldið 7. október klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.

Út úr skelinni, hópur eldri einstaklinga með ódæmigerða einhverfu og Aspergersheilkenni (18 ára og eldri) hittist næst sunnudaginn 11. október, klukkan 16:00, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Sá hópur hittist svo á tveggja vikna fresti á Háaleitisbrautinni. Allir velkomnir.

Akureyri:

Foreldrahópur á Akureyri ætlar að hittast mánudaginn 5. október klukkan 20:00 í húsnæði Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg.

Kveðja, Elín M. Lýðsdóttir, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

   

Sólskinsdrengurinn

Búin að fá staðfest hjá Senu, að Kate Winslet útgáfan af Sólskinsdrengnum verður endursýnd vegna fjöldaáskorana dagana 28 sept - 1 oktober í HÁSKÓLABÍÓI kl 6 -8 -10 AÐEINS ÞESSA 4 daga. Þetta byrjar á mánudaginn í næstu viku

Við erum þakklát Senu að geta gert þetta með svona stuttum fyrirvara og frábært að fá þessa tíma, núna þurfum við bara öll að koma þessu vel á framfæri og um að gera að fá sem flesta

Baráttukveðjur að vanda, Margrét Dagmar

   

Ábendingahnappur frá Barnaheill