Einhverfa.is

Þú ert hérna: Fréttir Fréttasafn
Villa
  • Villa varð í hleðslu gagnamiðlara.


Fréttasafn

Minn Styrkur

Kæru félagar,
Innan Umsjónarfélagsins er til staðar mikil, en dreifð þekking. Nú vantar okkur þína þekkingu á velferðarkerfinu svo við getum fjármagnað sumarnámskeið 2010 fyrir börn og unglinga á einhverfurófinu (umfang og aldursbil fer eftir fjármagni sem fæst fyrir launagreiðslur leiðbeinenda).

Næstkomandi miðvikudagskvöld kl 20, munum við hittast í fundarsal á Háaleitisbraut 13, 4. hæð, til að fá hugmyndir þínar um styrktaraðila og tengiliði meðal stofnana, sveitarfélaga, fyrirtækja og félagasamtaka á suðvesturhorninu. Það er núna sem þú getur lagt á vogarskálarnar, því allar umsóknir þarf að senda inn í september til að hægt sé að fjármagna verkefnið. Jóhannes Már mun samhæfa sjálft umsóknarferlið, okkur vantar aðallega vísbendingar um hvar við ættum að banka uppá og hvernig við getum nýtt okkur tengslanetið til að stytta boðleiðir.

Nánar um verkefnið:

Síðastliðinn vetur voru stofnaðir 3 þekkingarhópar innan Umsjónarfélagsins. Þekkingarhópurinn "Minn Styrkur" vinnur að því að koma á laggirnar sumarnámskeiðum næsta sumar, í samstarfi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Þannig munu reynslumiklir þroskaþjálfanemar vinna nauðsynlega undirbúningsvinnu í vetur sem hluta af sínu námi. Síðan þarf að manna sjálf námskeiðin og vonumst við til að sami hópur muni taka að sér umsjón og kennslu á námskeiðunum. Háskólinn mun þó ekki koma að sjálfri framkvæmd námskeiðanna og reiknum við því með að greiða laun allt að 10 leiðbeinenda í 2 mánuði. Það hljómar kannski sem hin mesta bjartsýni, en með samstilltu átaki er það raunhæft og vel framkvæmanlegt.

Nánar um þekkingarhópinn, markmið og námskeiðin sjálf.

Vonumst til að sjá sem flesta, við höfum þetta markvisst, stutt og skemmtilegt:)

f.h. þekkingarhópsins Minn Styrkur

Arndís, Helgi Þór, Jóhannes Már, Sólveig

 

Foreldrahópar í september

Akureyri:
Foreldrahópur á Akureyri ætlar að hittast mánudaginn 7. september klukkan 20:00 í húsnæði Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg.

Kveðja, Elín M. Lýðsdóttir, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Reykjanes:

Hópastarfið byrjar í október. Það verður auglýst nánar síðar.

Reykjavík:

Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu mun hittast miðvikudagskvöldið 2. september klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.

Hópur foreldra barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast fimmtudagskvöldið 3. september klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.

Suðurland:

Foreldrar á Suðurlandi ætla að hittast fimmtudagskvöldið 3. September klukkan 19:30-21:30, í húsnæði Svæðisskrifsstofu um málefni fatlaðra, Eyravegi 25, Selfossi.

Kveðja, Aðalbjörg Skúladóttir, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Vestmannaeyjar:

Í Vestmannaeyjum höfum við ekki ákveðið fyrsta fund vetrarins en við hittumst reglubundið (mánaðarlega) yfir vetrartímann. Áhugasamir geta haft samband við undirritaða í s. 698 5510 eða á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Með bestu kveðju, Guðrún Jónsdóttir Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Ekki þarf að tilkynna þátttöku í hópastarfið, bara mæta á staðinn.

 

Reykjavíkurmaraþon

Umsjónarfélag einhverfra vill þakka öllum þeim sem komu á einn eða annan hátt að Reykjavíkurmaraþoninu og studdu við félagið með hlaupum, áheitum eða vinnu. Hlauparar voru mjög ánægðir með stuðningshópana sem voru meðfram hlaupabrautinni og hvöttu þá áfram. Félagið kom ótrúlega vel út úr þessu verkefni og safnaðist tæp hálf milljón í áheit, sjá frétt frá RÚV hér fyrir neðan.

Með kveðju, Sigrún Birgisdóttir, skrifstofu Umsjónarfélags einhverfra.

Sjö milljónir til góðgerðamála

Tæpar 7 milljónir söfnuðust til styrktar góðgerðarfélögum í Reykjavíkurmaraþoninu á laugardag. Opið er fyrir áheit til miðnættis í kvöld og búist er við að upphæðin hækki töluvert. Í fyrra söfnuðust tuttugu milljónir króna.

Eins og undanfarin ár gafst öllum hlaupurum, fyrir utan þátttakendur í Latabæjarhlaupinu, kostur á að hlaupa til góðs, þ.e. að láta heita á sig til styrktar góðgerðarfélagi. 4.332 manns nýttu sér þennan mögulega af þeim 7.400 sem stóð það til boða. Þar af voru 863 hlauparar sem einhver áheit fengu.

Áheitasöfnunin fór hægar af stað en undanfarin ár. Á laugardaginn, hlaupadaginn sjálfan, höfðu safnast 6,7 milljónir. Það er töluvert minna en í fyrra þegar 20 milljónir söfnuðust. Í ár hlupu flestir til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna og fær félagið 884 þúsund krónur í sinn hlut. Næstvinsælast var Umsjónarfélag einhverfra með tæpa hálfa milljón og svo Göngum saman, félag sem styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini með 331 þúsund.

Opið er fyrir áheit til miðnættis í kvöld, svo búist er við að heildarupphæðin hækki töluvert. Þá eru áheit sumra fyrirtækja á starfsmenn sína og maka þeirra ekki talin með. Til dæmis hlupu 69 starfsmenn Össurar hf. og makar til styrktar Íþróttasambandi fatlaðra og söfnuðu 323.500 krónum

   

Vantar sjálfboðaliða vegna Reykjavíkurmaraþons

Hér fyrir neðan er bréf frá Íslandsbanka þar sem við erum beðin um að safna liði til að vera með hvatningarhóp á Kirkjusandi á meðan á Reykjavíkurmaraþoni stendur. Endilega lesið bréfið og látið mig vita ef þið sjáið ykkur fært að mæta. Umsjónarfélagið mun sjá ykkur fyrir bolum merktum félaginu. Gaman væri ef hægt væri að mynda hóp þarna því þetta er ein af stærri fjáröflunum félagsins. Í fyrra söfnuðust yfir 600.000 og í ár hafa hátt í 80 hlauparar skráð sig til hlaups til stuðnings Umsjónarfélagi einhverfra. Endilega látið mig vita ef þið getið mætt, sendið skilaboð á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Með kveðju, Sigrún Birgisdóttir, skrifstofu Umsjónarfélags einhverfra.

Kæru félagsmenn Umsjónarfélags einhverfra

Okkur hjá Íslandsbanka þætti vænt um að sjá félagsmenn koma saman undir fána ykkar við Íslandsbanka á Kirkjusandi kl. 09:00 næstkomandi laugardag. Í fyrra voru fyrstu þátttakendur að fara þar framhjá kl 09:19 og þeir síðustu um 11:40. Þarna framhjá fer bæði heilt og hálft maraþon.

Ykkar hlutverk yrði að hvetja hlauparana áfram á leið þeirra í Maraþoninu. Hlaupurum finnst ekkert eins skemmtilegt eins og að fá hvatningu á þeirra löngu leið og okkur finnst ekkert eins skemmtilegt eins og að sjá hóp frá þeim félögum sem bankinn styrkir í gegnum hlaupið hvetja styrkveitendur þeirra.

Umsjónarfélagið var að gera boli vitum við af og væri gaman að sjá einhverja af félagsmönnum i þeim.

Það væri okkur sönn ánægja ef þið gæfuð ykkur tíma til þess að koma til okkar á Kirkjusand og leggja okkur lið. Við hlökkum til þess að leggja ykkur lið og vonandi safnast sem mest til handa félögum.

Til að gera góða stemmingu enn betri, hafa góðgerðafélögin myndað sína eigin stemmingu með því að mæta með útilegustólana og borðin, heitt kaffi og fleira, þannig að vel fari um alla.

Með hlaupakveðju,f.h. undirbúningshóps Maraþons Íslandsbanka

Guðbjörg Eiríksdóttir, sími 844 4553

 

Bolir til sölu

Stuttermabolir með merki Umsjónarfélags einhverfra:
Umsjónarfélag einhverfra hefur látið útbúa stuttermaboli með merki félagsins. Þeir sem hafa áhuga á að hlaupa í bolum merktum félaginu í Reykjavíkurmaraþoni geta keypt þá á skrifstofu félagsins á kr. 1000,-. Bolirnir eru í stærðunum 7-8 ára, 11-12 ára og s, m, l, og xl í fullorðinsstærðum.

Skrifstofan verður opið á þriðjudaginn 18. ágúst frá 16 til 18, miðvikudaginn 19. ágúst frá 9 til 16 og föstudaginn 21. ágúst frá 9 til 14. Skrifstofa félagsins er að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.

Með kveðju, Sigrún Birgisdóttir, skrifstofu Umsjónarfélags einhverfra.

   

Reykjavíkurmaraþon

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram laugardaginn 22. ágúst næstkomandi. Í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2009 er hægt að hlaupa til góðs og geta hlauparar tengt sig ákveðnu líknarfélagi og óskað eftir að heitið sé á þá. Hægt er að tengja sig góðgerðarfélögunum um leið og skráning fer fram á síðunni www.reykjavikurmarathon.is eða á "mínum síðum". Ekki er mögulegt að skipta um góðgerðarfélag eftir að söfnun er hafin. Viljum við hvetja þá félagsmenn og velunnara sem ætla að hlaupa í ár að styðja Umsjónarfélag einhverfra. Skráningargjöld í hlaupið hækka 1. júlí og er því gott að vera tímanlega með skráninguna. Í ár verður sú breyting á áheitum að þeir aðilar sem halda utan um skráninguna taka þóknun af hverju áheiti sem kemur inn hjá þeim og er þóknunin 10%. Því kemur betur út fyrir Umsjónarfélagið að greiða áheitin beint inn á reikning félagsins í Kaupþingi, númerið er 0334-26-002204 og kennitala félagsins er 700179-0289. Er þá hægt að setja í texta með greiðslu að um áheit sé að ræða á ákveðið nafn.
Með kveðju, Sigrún Birgisdóttir, skrifstofu Umsjónarfélags einhverfra.

 

Sumarlokun skrifstofu

Skrifstofa Umsjónarfélags einhverfra verður lokuð í sumar frá 1. júlí til 15. ágúst. Ef þörf er á þá er hægt að ná í okkur í eftirtöldum símanúmerum:
Sigrún Birgisdóttir s: 8972682 Eva Hrönn Steindórsdóttir s: 6914433

Með kveðju, Sigrún Birgisdóttir, skrifstofu Umsjónarfélags einhverfra.

   

RPM - hópurinn

Fimmtudaginn 4. júní mun þekkingarhópur um RPM aðferðina hittast aftur. Við munum taka upp þráðinn þar sem við hættum síðast. Allir velkomnir.


Fundarstaður: Háaleitisbraut 13, 4. Hæð

Fundartími: Fimmtudagurinn 4. Júní klukkan 20:00-22:00.

Þekkingarhópur um RPM, Ásta Birna Ólafsdóttir, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Minn Styrkur - kynningarfundur

Heil og sæl,

Miðvikudaginn 27. maí munum við halda kynningarfund til að ræða áætlun sumarsins 2009 og jafnframt halda stutta kynningu á Storytelling Alice. Við hvetjum alla áhugasama foreldra, aðstandendur og fagaðila til að kíkja við og leggja orð í belg.

Fundartími: 27. maí klukkan 20:00

Fundarstaður: Háaleitisbraut 13, 4. hæð.


Þekkingarhópurinn "Minn Styrkur" var settur á fót fyrir páska og setti sér eftirfarandi þrjú markmið; að leita uppi styrkleika einstaklingsins, að leyfa börnunum sjálfum að prófa fræðslubúnað af ýmsu tagi og að skapa nýtt tómstundaúrræði í sumar og jafnvel næsta vetur ef vel tekst til. Varðandi þriðja markmiðið, að halda námskeið sumarið 2009, þá vorum við vongóð með að fá samstarfsaðila til að sjá um daglega umsjón og fjármögnun. Enn sem komið er höfum við þó ekki fengið það staðfest, en við munum halda áfram að vinna að undirbúningi slíkra námskeiða, enda hafa viðbrögðin við hugmyndinni verið feiknagóð.

Dagskrá fundarins verður þannig:

Staða á námskeiðsundirbúningi og valkostir:
Samstarf við Rvk.borg
Að halda námskeiðin sjálf
Fresta til næsta árs.
Kynning á Storytelling Alice kennslubúnaðinum.
Áherslur á fræðsluefni m.t.t. umræðu um námsskrána (sjá viðhengi).
Önnur mál
F.h. þekkingarhópsins Minn Styrkur,

Helgi Þór

   

Einhverfa - Hvað er til ráða?

Umsjónarfélag einhverfra í samstarfi við nemendur í verkefnastjórnun MPM í Háskóla Íslands bjóða til frumsýningar á fræðslumyndinni

"Einhverfa - hvað er til ráða?"

Í myndinni eru meðferðarúrræði sem í boði eru á Íslandi kynnt. Sérfræðingar á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins svara spurningum og skyggnst er inní líf fjölskyldna einhverfra barna.

Sýningin verður fimmtudaginn 14. maí stundvíslega kl. 16.30 í Háskólabíó, sal 1

Allir þeir sem láta sig málefni einhverfra varða eru boðnir hjartanlega velkomnir

Með kveðju,

MPM nemar og UE

 

Bókin "Baráttan fyrir börnin"

Baráttan fyrir börnin - Reynslusaga móður af einhverfu

Karen Kristín Ralston er Bandaríkjamaður, búsett á Íslandi og tvö fjögurra barna hennar hafa verið greind með einhverfu. Baráttan fyrir börnin er persónuleg saga hennar og fjölskyldu hennar í baráttu þeirra við þennan erfiða og einstaklingsbundna sjúkdóm. Bókin er til sölu hjá Sölku, í bókabúðum og áskrifstofu Umsjónarfélags einhverfra.

   

Hópastarf í maí

Hópastarf í Reykjavík

Út úr skelinni, hópur eldri einstaklinga með ódæmigerða einhverfu og Aspergersheilkenni (18 ára og eldri) hittist næst sunnudaginn 10. maí, klukkan 16:00, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Sá hópur hittist svo á tveggja vikna fresti á Háaleitisbrautinni. Allir velkomnir.

Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu mun hittast miðvikudagskvöldið 6. maí klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð. Svo fer hópurinn í frí fram í september.

Hópur foreldra barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast fimmtudagskvöldið 7. maí klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð. Svo fer hópurinn í frí fram í september.

Ekki þarf að tilkynna þátttöku í hópastarfið, bara mæta á staðinn.

Hópastarf á Reykjanesi

Síðasti fundur foreldrahóps á Reykjanesi þennan veturinn verður fimmtudaginn 7. maí kl. 20,30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ. Vonumst til að sjá sem flesta.

Kveðja, Jóhanna María, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , 862-8209

Hópastarf á Suðurlandi

Síðasti fundur fyrir sumarið hjá okkur á Suðurlandi er fimmtudaginn 7. maí kl. 19:30-21:30. Í húsnæði Svæðisskrifsstofu um málefni fatlaðra, Eyravegi 25, Selfossi.

Með kveðju, Aðalbjörg Skúladóttir, s: 820-6882

Hópastarf á Akureyri

Foreldrahópur á Akureyri, síðasti fundur fyrir sumarið verður mánudaginn 4. maí klukkan 20.00 í húsnæði Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg.

Kveðja, Elín Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Sími 8226418

 

Aðalfundur Umsjónarfélags einhverfra

Aðalfundur

Umsjónarfélags einhverfra

verður haldinn miðvikudaginn 29. apríl 2009, klukkan 20:00.

Fundarstaður: Háaleitisbraut 13, salur á 4. hæð.

Fundarefni:

Venjuleg aðalfundarstörf.

Önnur mál.

Frumsýnd verður heimildarmynd um þjónustuúrræði fyrir börn með einhverfurófsraskanir, frá greiningu og upp skólakerfið.

Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og kynna sér starfsemi félagsins, taka sameiginlegar ákvarðanir um þau málefni, sem eru framundan hjá félaginu. Það þarf sífellt að vera vakandi vegna velferðarmála einhverfra, og því áríðandi, að sem flestir taki þátt í félagsstarfinu.

Stjórnin.

   

Er RPM eitthvað fyrir mig?

Opinn fundur hjá umsjónarfélagi einhverfra þann 16. apríl klukkan 20-22,

Að Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Er RPM eitthvað fyrir mig?

Á einhverfi sonur þinn eða dóttir erfitt með talað mál og markvissa tjáningu? Eruð þið í hópi þeirra foreldra sem í gegnum árin eruð búin að prófa ýmislegt, en með litlum árangri? Er vonin farin að dvína? Ef svo er þá er RPM kannski eitthvað sem ykkur langar til að kynna ykkur betur.

RPM eða Rapit Prompting Method er sú aðferð sem kynnt var stuttlega í kvikmyndinni Sólskisndrengur á dögunum. Þann 16.apríl nk. Kl: 20:00 (Háleitisbraut) munu foreldrar þeirra einstaklinga sem oft eru flokkuð undir það að vera á þyngri enda einhverfurófsins hittast. Við munum ræða um syni okkar og dætur og einnig hvort RPM sé eitthvað sem við gætum nýtt okkur. Á fundinum verður hægt að fá upplýsingar um hvar nálgast megi efni um aðferðina og horft verðum á myndbrot um aðferðina.

Vonumst til þess að sem flestir foreldra sjái sér fært að mæta og eiga með okkur notalega kvöldstund.

Þekkingarhópur um RPM, Ásta Birna Ólafsdóttir, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Tölvumiðstöð fatlaðra

Tölvumiðstöð fatlaðra er komin með nýja heimasíðu, slóðin er www.tmf.is . Þar er að finna upplýsingar um námskeið, tölvu- og hugbúnað og leiki.

   

Opinn fundur 30.mars

Opinn fundur hjá Umsjónarfélagi einhverfra

FUNDAREFNI:

Stofnaðir verða tveir þekkingarhópar

Annar hópurinn fjallar um kennsluhugbúnað sem getur nýst í þjálfun einstaklinga á einhverfurófi, hinn hópurinn mun fjalla um starfsþjálfun og atvinnuúrræði í anda Specialisterne. Á þessari slóð er umfjöllun um Specialisterne úr Fréttablaðinu.

Fundartími: Mánudaginn 30. mars, klukkan 20:00-22:00.

Fundarstaður: Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Fundurinn er öllum opinn.

   

Ábendingahnappur frá Barnaheill