Einhverfa.is

Þú ert hérna: Fræðsla Ráð frá foreldrum
Villa
  • Villa varð í hleðslu gagnamiðlara.


Ráð frá foreldrum

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Þar sem foreldrar og aðstandendur einhverfra barna hittast koma oft í ljós ýmis ráð sem deilt er á milli. Hér er þeim safnað saman. 

Ef þú hefur eitthvað sniðugt ráð sem þú vilt deila með öðrum endilega hafðu samband.

 Bíóferðir: Hafa barnið með heyrnahlífar ef það er viðkvæmt fyrir hávaða. 

  • Sturtu/baðferðir: Í rúmfatalagernum hefur verið hægt að kaupa nokkurskonar skyggni sem sett er á höfuðið sem varnar því að vatn fer í augun og eyrun. 
  • Til að muna: Vertu alltaf með  blað og blýant á þér. Þú veist aldrei hvenær þú færð gagnlegar upplýsingar og þú munt alveg pottþétt ekki muna það allt þegar þú þarft á því að halda. 
  • Að bíða: Ef barnið á erfitt með að bíða prufaðu að gefa því tímaramma, t.d. mamma ætlar að klára að horfa á þessa frétt og svo skal ég tala við þig - Pabbi er upptekinn og getur hjálpað þér þegar stóri vísirinn er kominn beint upp. Svo er gott að nota niðurteljara. Sumir nota eggjaklukkur aðrir klukkur með rauðum fleti sem telur niður með rauðum fleti.