Einhverfa.is

Þú ert hérna: Flýtival Hvernig get ég frætt fólk um einhverfu?
Villa
  • Villa varð í hleðslu gagnamiðlara.


Hvernig get ég frætt fólk um einhverfu?

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

im 05


Það er ýmislegt hægt að gera til að fræða sína nánustu um einhverfu. Fólk á mis erfitt með að skilja einhverfuna og meðtaka greininguna og því er gott að gefa fólki sem bestar upplýsingar um röskunina. 

Hér á síðunni er að finna grein sem var skrifuð fyrir ömmur og afa barna með aspergersheilkenni. Greinin getur átt við fleiri en bara ömmur og afa og einnig um einhverf börn sem eru ekki með asperger. Upplagt er að prenta greinina út og dreifa til þeirra sem eru í kringum mann. Greinina má finna hér: Fyrir ömmur og afa

Hér er einnig að finna reynslusögur foreldra, þjálfara og einhverfra einstaklinga. Það er oft gott að lesa um annarra reynslu til að skilja betur hvað einhverfa er og hvaða áhrif hún hefur á barnið og fjölskyldu þess. Reynslusögurnar er hægt að prenta út og má nálgast hér: Reynslusögur.

Á síðunni er einnig að finna ýmislegt fleira sem getur sýnt fólki hvað einhverfa er. Við höfum tekið saman ýmsar áhugaverðar vefsíður sem gott er að skoða, t.d. blogg, fréttir og myndbönd af netinu, m.a. fræðslumyndir frá BBC sem eru á Youtube. Þetta efni er að finna hér: Áhugavert á netinu.

Margar bækur hafa verið gefnar út um einhverfu eða af einhverfum. Listi yfir bækur sem hafa verið þýddar á íslensku má finna hér á síðunni. Bókin Frík, nördar og aspergersheilkenni gefur til dæmis skemmtilega lýsingu á lífi 13 ára drengs með einhverfu og lýsir því vel hvernig hann sér heiminn. Tilvalin bók til að færa vinum og aðstandendum. Útgefið efni

Hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins er hægt að fá kynningarfund fyrir aðstandendur eftir að greining hefur farið fram. Það er því  um að gera að vera í sambandi við sinn tengilið þar og spyrjast fyrir um þessa þjónustu. Þar eru líka reglulega haldin námskeið um ýmislegt tengt einhverfu og má kannski sérstaklega benda á "Röskun á einhverfurófi - grunnnámskeið" þar sem markmiðið er m.a. að auka skilning og þekkingu aðstandenda á einhverfu. Námskeiðið er haldið reglulega og er tilvalið af fá þá sem standa manni næst til að koma á það námskeið. Námskeið hjá Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins

Það er um að gera að hvetja aðstandendur og vini til að kynna sér einhverfuna vel til að fá sem mestan skilning frá fólkinu sem er í kringum mann. Allt það efni sem er hér á síðunni er hægt að prenta út og einnig senda í tölvupósti.