Skrifstofa Einhverfusamtakanna
Skrifstofa Einhverfusamtakanna verður lokuð frá 9. maí til 21. maí.
Skrifstofa Einhverfusamtakanna verður lokuð frá 9. maí til 21. maí.
Á aðalfundi Umsjónarfélags einhverfra þann 30. apríl sl. var samþykkt að breyta nafni félagsins í Einhverfusamtökin. Þegar félagið var stofnað árið 1977 voru það foreldrar og fagfólk á BUGL sem stóðu að stofnuninni og fékk félagið nafnið Umsjónar og áhugamannafélag einhverfra barna og á fyrsta aðalfundi félagsins 1978 var nafninu breytt í Umsjónarfélag einhverfra barna. Á þeim tíma fengu þeir einir greiningu á einhverfurófi sem þurftu mikla umönnun og aðstoð. Í kringum 1990(nákvæmar heimildir vantar) var orðið „barna“ fellt út úr nafni félagsins þar sem markhópur félagsins var ekki eingöngu börn.
Á síðustu árum hefur orðið mikil fjölgun í greiningum fullorðinna og margir eru að fá greiningarnar Aspergersheilkenni eða ódæmigerð einhverfa. Þessi hópur er orðinn virkur í starfi félagsins, situr í stjórn og nefndum og hefur mikið fram að færa varðandi málefni einhverfra. Því var talin þörf á að finna félaginu nafn sem næði yfir alla félagsmenn. Vonum við að það hafi tekist með þessari nafnbreytingu.
Hópur foreldra barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast miðvikudagskvöldið 8. maí klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, fundarherbergi 4. hæð. Nánari uppplýsingar veitir Sigrún í síma: 8972682 eða á netfanginu Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/einhverfu í grunnskólum/framhaldsskólum mun hittast miðvikudagskvöldið 8. maí klukkan 20:00 að Háaleitisbraut 13, í fundarherbergi á 2. hæð. Nánari upplýsingar veitir Sigrún í síma:8972682 eða á netfanginu Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Minn styrkur - Sumarnámskeið fyrir unglinga á einhverfurófi:
Umsjónarfélag einhverfra heldur þrjú sumarnámskeið fyrir unglinga, 12-20, ára í sumar. Hvert námskeið stendur í tvær vikur. Verða þau með svipuðum hætti og í fyrrasumar, þ.e. unglingarnir mæta virka daga 8:30 og eru á staðnum til 16:30. Farið eru í leiki, sund, keilu, klifur ofl. Er þetta samstarfsverkefni Soroptimistaklúbbs Reykjavíkur og Umsjónarfélags einhverfra.
Fyrsta námskeiðið verður 24. júní-5. júlí, annað námskeiðið verður 8.-19. júlí og þriðja námskeiðið verður 22. júlí-2. ágúst.
Námskeiðin verða haldin í Mýrarhúsaskóla. Námskeiðið kostar kr. 25.000,- og er hádegisverður innifalinn.
Fjórir leiðbeinendur eru með 10-12 unglingum og þarf því þörf fyrir aðstoð að miðast við það.
Skráningin verður opin til 15. maí.
Hafið samband við Sigrúnu sími: 8972682, netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ef þið viljið fá umsóknareyðublað eða nánari upplýsingar um námskeiðin.
Síða 1 af 8