Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík | Sími: 562-1590
Aðalvalmynd
Ýmislegt
Leturstærð:
Innskrá
2010-04-16 11:08:21
Sumarúrræði á höfuðborgarsvæðinu sumarið 2010.
http://minnstyrkur.wordpress.com/skraning-a-sumarnamskeid-2010/
Garðabær: Ekki nein sérúrræði fyrir börn með sérþarfir. Garðabær er ekki með leikjanámskeið, íþróttafélögin og skátarnir sjá um þau. Sími 525 8500
Mosfellsbær: Stuðningur er veittur á leikjanámskeið og í unglingavinnu. 18-20 ára fá stuðning í bæjarvinnu. Íþróttafulltrúi: Sigurður s: 566 6754, tómstundafulltrúi: Edda s: 566 6058.
Reykjavík: Stuðningur á leikjanámskeið fyrir börn, frístundaklúbbar fyrir fötluð börn 10-16 ára, stuðningur í unglingavinnu, vinnutengd verkefni í frístundaklúbbum fyrir börn í 8. Til 10. bekk. Hitt húsið – vinna með stuðningi fyrir unglinga 16-20 ára. Vinnuskólinn: Kolbrún Ingibjörg Jónsdóttir kij@hi.is ÍTR: Katrín Þórdís Jacobsen katrin.thordis.jacobsen@reykjavik.is, Hitt húsið: Jenný Magnúsdóttir jenny@hitthusid.is
Seltjarnarnes: Stuðningur er veittur á leikjanámskeið.Nilsína Larsen s: 595 9177. Stuðningur einnig í unglingavinnunni. Steinunn Árnadóttir s: 595 9183
Hafnarfjörður: Eitt leikjanámskeið ætlað börnum með sérþarfir. Reynt að veita stuðning inn á almenn leikjanámskeið ef það hentar betur. Vinnuskólinn með sér hóp fyrir unglinga með sérþarfir. Reynt að koma til móts við aðrar þarfir. Sigurgeir / Ragna s: 565 1899.
Kópavogur: Sumarnámskeið fötluð börn og unglina á aldrinum 6 til 15 ára, auka þess vinnutengd úrræði fyrir ungmenni frá 16 til 20 ára. Anna Margrét Erlingsdóttir s: 570 1500.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra: Sumarbúðir í Reykjadal og á Laugalandi í Holtum. Umsóknarfrestur um sumardvöl í Reykjadal rann út 1. Mars en umsóknarfrestur um sumardvöl í laugalandi er til 31. mars. Helgardvöl í Reykjadal á vetrum. Sumarnámskeið fyrir börn. www.slf.is
Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík: Sundnámskeið í júní. www.ifr.is
Íþróttasamband fatlaðra: Sumarbúðir fyrir 16 ára og eldri að Laugavatni, http://web.mac.com/sumarbudir Upplýsingar veitir Jóhann Arnarson s: 8484104 og Baldur Þorsteinsson s: 897 9393.
2010-04-16 10:43:46
2010-03-29 15:55:12
Reykjavík:
Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu í grunnskólum/framhaldsskólum mun hittast miðvikudagskvöldið 7. apríl klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.
Hópur foreldra barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast fimmtudagskvöldið 8. apríl klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð.
Út úr skelinni, hópur eldri einstaklinga með ódæmigerða einhverfu og Aspergersheilkenni (18 ára og eldri) hittist næst sunnudaginn 11. apríl, klukkan 15:15-17.15, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Sá hópur hittist svo á tveggja vikna fresti á Háaleitisbrautinni. Allir velkomnir.
Reykjanes: Hópur foreldra á Reykjanesi mun hittast fimmtudagskvöldið 8. apríl kl. 20:30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ. Vonumst til að sjá sem flesta. Kveðja, Jóhanna María, johannamaria@simnet.is, 862-8209
Suðurland: Foreldrar á Suðurlandi ætla að hittast fimmtudagskvöldið 8. apríl klukkan 19:30-21:30, í húsnæði Svæðisskrifsstofu um málefni fatlaðra, Eyravegi 25, Selfossi. Kveðja, Aðalbjörg Skúladóttir, abba@verksud.is
2010-03-19 12:20:14
Opinn fræðslufundur hjá
Umsjónarfélagi einhverfra 25. mars
Sumarúrræði fyrir börn og unglinga með fötlun á einhverfurófi
Kynnt verður það helsta sem í boði er hér á höfuðborgarsvæðinu.
Á fundinn kom fulltrúar frá eftirfarandi aðilum:
Fundartími: Fimmtudagurinn 25. mars, klukkan 20:00.
Fundarstaður: Háaleitisbraut 13, 4.hæð.
Fundurinn er öllum opinn.
2010-02-26 12:17:24
Hópur foreldra eldri barna með einhverfu í grunnskólum/framhaldsskólum mun hittast þriðjudagskvöldið 2. mars klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13. 4. hæð. Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu í grunnskólum/framhaldsskólum mun hittast miðvikudagskvöldið 3. mars klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.Hópur foreldra yngri barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast fimmtudagskvöldið 4. mars klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Út úr skelinni, hópur eldri einstaklinga með ódæmigerða einhverfu og Aspergersheilkenni (18 ára og eldri) hittist næst sunnudaginn 7. mars, klukkan 15:15-17.15, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Sá hópur hittist svo á tveggja vikna fresti á Háaleitisbrautinni. Allir velkomnir.
Akureyri: Foreldrahópur á Akureyri ætlar að hittast mánudaginn 8. mars klukkan 20:00 í húsnæði Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg. Kveðja, Elín M. Lýðsdóttir, elin@hugurax.is
Reykjanes: Hópur foreldra á Reykjanesi mun hittast fimmtudagskvöldið 4. mars kl. 20:30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ. Þórdís Þormóðsdóttir fyrrverandi fjölskylduráðgjafi Þroskahjálpar á Suðurnesjum mæti á fundinn með fræðslu. Vonumst til að sjá sem flesta. Kveðja, Jóhanna María, johannamaria@simnet.is, 862-8209
Suðurland: Foreldrar á Suðurlandi ætla að hittast fimmtudagskvöldið 4. mars klukkan 19:30-21:30, í húsnæði Svæðisskrifsstofu um málefni fatlaðra, Eyravegi 25, Selfossi. Kveðja, Aðalbjörg Skúladóttir, abba@verksud.is
2010-02-19 11:35:15
Miðvikudaginn 17. febrúar síðastliðinn var haldinn fræðslufundur hjá Umsjónarfélagi einhverfra um lífseflihópinn „Út úr skelinni“. Þrír einstaklingar með fötlun á einhverfurófi, þau Freddý, Kjartan og Kristín lístu lífi sínu og þeim áhrifum sem það hefur haft að taka þátt í starfi „Út úr skelinni“. Greinilegt er að starf hópsins er að veita þeim mikinn stuðning, en einnig þjálfun í félagslegum samskiptum. Þökkum við þeim kærlega fyrir að koma og deila reynslu sinni með okkur.
2010-02-12 11:28:35
Opinn fræðslufundur hjá Umsjónarfélagi einhverfra
FUNDAREFNI: „Út úr skelinni“
Kynning á lífseflingarhópi („empowerment“hópi) fólks, 18 ára og eldri á einhverfurófi sem starfræktur er á vegum Umsjónarfélags einhverfra. Hópur þessi var stofnaður fyrir 3 árum eftir sænskri fyrirmynd.Þátttakendur í hópnum munu segja frá reynslu sinni og svara spurningum.
Fundartími: Miðvikudaginn 17. febrúar, klukkan 20:00-22:00.
Fundarstaður: Háaleitisbraut 13, 4. hæð.
2010-02-05 12:19:56
Námskeið fyrir einhverfa unglinga þar sem félagsfærni þeirra verður meðal annars efld verður haldið næsta sumar.
Ekki hefur verið boðið upp á sambærileg námskeið áður en að sögn Helga Þórs Jónssonar, eins skipuleggjenda námskeiðsins, er mikil þörf á því að styrkja félagsfærni einhverfra unglinga. Á unglingsárum breytist samskipti, meira sé um ósögð orð og hálfkveðnar vísur sem reynist einhverfum oft erfitt að ráða í.
Helgi er félagi í Umsjónarfélagi einhverfra og segir hugmyndina að námskeiðinu hafa kviknað í kjölfar heimildarmyndarinnar Sólskinsdrengsins. Í henni er meðal annars fjallað um styrkleika einhverfra sem margir eru mjög hæfileikaríkir. Í framhaldinu var ákveðið að þróa námskeið fyrir einhverf börn og unglinga til að efla þau á ýmsum sviðum.
Leitað var samstarfs við þroskaþjálfarabraut HÍ um hönnun og uppbyggingu sumarnámskeiðs. Helgi Þór segir frábært hversu vel hugmyndinni hafi alls staðar verið tekið. Meðal annars styrkir Soroptimistafélag Reykjavíkur námskeiðið og segir Sigrún Valgarðsdóttir, varaformaður þess, að þeim hafi þótt hugmyndin svo góð og vel útfærð að þær vildu leggja sitt af mörkum til þess.
Verkefnið Minn styrkur, sem sagt námskeiðið og hugmyndin á bak við það, verður kynnt í Háskóla Íslands í dag klukkan 12.- sbt
2010-02-01 15:16:21
Dagskráin er svohljóðandi:
12:00 Pistlar og umræður
13:00 Sýning á heimildarmyndinni “Sólskinsdrengurinn – Einhverfa í nýju ljósi“
14:30 Umræður, dagskrárlok
Kynningin er hugsuð jafnt fyrir foreldra, fagfólk og nemendur Menntavísindasviðs, þátttaka ókeypis.
Þekkingarhópurinn Minn Styrkur,
Arndís
Jóhannes Már Helgi Þór
Sólveig Ragnarsdóttir
2010-01-29 13:13:34
Reykjavík: Hópur foreldra eldri barna með einhverfu í grunnskólum/framhaldsskólum mun hittast þriðjudagskvöldið 2. febrúar klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13. 2. hæð.
Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu í grunnskólum/framhaldsskólum mun hittast miðvikudagskvöldið 3. febrúar klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.
Hópur foreldra yngri barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast fimmtudagskvöldið 4. febrúar klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.
Út úr skelinni, hópur eldri einstaklinga með ódæmigerða einhverfu og Aspergersheilkenni (18 ára og eldri) hittist næst sunnudaginn 7. febrúar, klukkan 15:15-17.15, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Sá hópur hittist svo á tveggja vikna fresti á Háaleitisbrautinni. Allir velkomnir.
Akureyri: Foreldrahópur á Akureyri ætlar að hittast þriðjudaginn 9. febrúar klukkan 20:00 í húsnæði Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg. Hulda sem er kennari við sérdeildina í Síðuskóla ætlar að koma með CAT kassann til að kynna hvernig hann er nýttur. Kveðja, Elín M. Lýðsdóttir, elin@hugurax.is
Reykjanes: Hópur foreldra á Reykjanesi mun hittast fimmtudagskvöldið 4. febrúar kl. 20,30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ. Vonumst til að sjá sem flesta. Kveðja, Jóhanna María, johannamaria@simnet.is, 862-8209
Suðurland: Foreldrar á Suðurlandi ætla að hittast fimmtudagskvöldið 4. febrúar klukkan 19:30-21:30, í húsnæði Svæðisskrifsstofu um málefni fatlaðra, Eyravegi 25, Selfossi. Kveðja, Aðalbjörg Skúladóttir, abba@verksud.is