Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík | Sími: 562-1590


Aðalvalmynd

Ýmislegt

Leturstærð:
Stækka letur Normal letur Minnka letur

Innskrá

















Fréttir

2010-08-27 11:41:31

NÚ FER HÓPASTARF FÉLAGSINS AÐ BYRJA

Út úr skelinni, hópur eldri einstaklinga með ódæmigerða einhverfu og Aspergersheilkenni (18 ára og eldri) hittist næst sunnudaginn 29. ágúst, klukkan 15:15-17.15, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð.   Sá hópur hittist svo á tveggja vikna fresti á Háaleitisbrautinni. Allir velkomnir.

Unglingahópurinn Hugsuðirnir (12-17 ára) hefur vetrarstarfið þriðjudaginn 31. ágúst  klukkan 17:30-19:30 í Þróttheimum við Holtaveg 11.  Nánari upplýsingar veitir Sigrún í síma 8972682.

Reykjavík:

Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu mun hittast   miðvikudagskvöldið 1. september klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.   

Hópur foreldra barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast miðvikudagskvöldið 1. september klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð.   

Akureyri: Foreldrahópur á Akureyri ætlar að hittast þriðjudaginn 14. september klukkan 20:00 í húsnæði Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg.  Kveðja,  Elín M. Lýðsdóttir, elin@hugurax.is

Reykjanes og Selfoss: Hópastarfið byrjar í október.  Það verður auglýst nánar síðar.  

        Ekki þarf að tilkynna þátttöku í hópastarfið, bara mæta á staðinn.

Skoðanir (2)

2010-07-23 16:35:28

ÁHEITASÖFNUN Í REYKJAVÍKURMARAÞONI

Búið er að opna  nýjan áheitavef fyrir Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010, hlaupastyrkur.is. Um er að ræða mun notendavænna umhverfi heldur en unnið hefur verið í undanfarin ár.

Á vefnum geta hlauparar sett inn myndir af sér og sagt frá því hversvegna þeir hafa valið að hlaupa fyrir tiltekið góðgerðafélag. Áheit er hægt að greiða með kreditkorti eins og verið hefur undanfarin ár en auk þess er hægt að heita á hlaupara með því að senda sms skilaboð.

Til að hefja söfnun þurfa hlauparar að fara inná vefinn hlaupastyrkur.is og velja „nýskráning“. Þá fá þeir tilboð um að setja inn mynd af sér og segja hversvegna þeir hlaupa fyrir tiltekið málefni. Hægt er að safna áheitum í tveimur flokkum; sem boðhlaupslið eða sem einstaklingur sem tekur þátt í maraþoni, hálfmaraþoni, 10 km hlaupi eða 3 km skemmtiskokki.

Það er von Reykjavíkurmaraþons að nýr vefur setji aukin kraft í áheitamálin og skili enn meiri tekjum í öll þau þörfu málefni sem hægt er að hlaupa fyrir.


Skoðanir (0)

2010-07-13 14:05:48

SUMARLOKUN SKRIFSTOFU Skrifstofa Umsjónarfélags einhverfra verður lokuð í sumar frá 13. júlí til 15. ágúst.  Ef þörf er á þá er hægt að ná í okkur í eftirtöldum símanúmerum:

Sigrún Birgisdóttir s: 8972682       Eva Hrönn Steindórsdóttir s: 6914433

               Með kveðju, Sigrún Birgisdóttir, skrifstofu Umsjónarfélags einhverfra.

Skoðanir (0)

2010-09-03 10:26:50

ÚT ÚR SKELINNI Tilkynning frá hópnum „Út úr skelinni“:
Síðasti fundur var haldinn í Heiðmörk sunnudaginn 13. júní. Um 16 manns hittust á Háaleitisbrautinni þar sem við skiptum okkur í bíla og ókum í Heiðmörk með viðkomu í Krónunni í Árbæ. Við grilluðum Hamborgara og borðuðum saman í góðum félagsskap. Dálítið kalt var í veðri en það kom ekki að sök því flestir voru vel búnir. Góð stemning var í hópnum.


Nú er sumarfrí og næsti fundur á Háaleitisbrautinni verður því 29. ágúst kl. 15:15


Sú hugmynd var rædd í hópnum að hafa hitting á Kofa Tómasar frænda á Laugaveginum í sumarfríinu. Þeir sem vilja vera með geta sent Freddy tölvupóst og spurt hana hvenær á að hittast. Netfangið er:  dreamfinder9900@yahoo.com
Skoðanir (0)

2010-06-18 11:16:15

REYKJAVÍKURMARAÞON ÍSLANDSBANKA

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram laugardaginn 21. ágúst næstkomandi. Í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010 er hægt að hlaupa til góðs og geta hlauparar tengt sig ákveðnu líknarfélagi og óskað eftir að heitið sé á þá. Hægt er að tengja sig góðgerðarfélögunum um leið og skráning fer fram eða á "mínum síðum" á síðu hlaupsins  http://www.reykjavikurmarathon.is/reykjavikurmaraton . Ekki er mögulegt að skipta um góðgerðarfélag eftir að söfnun er hafin.  Viljum við hvetja þá félagsmenn og velunnara sem ætla að hlaupa í ár að styðja Umsjónarfélag einhverfra.  Skráningargjöld í hlaupið hækka 1. júlí og er því gott að vera tímanlega með skráninguna.         

Með kveðju,  Sigrún Birgisdóttir, skrifstofu Umsjónarfélags einhverfra. 

Skoðanir (0)

2010-05-27 12:32:01

Golfmót til styrktar sumarnámskeiðum Umsjónarfélags einhverfra

Kvennagolfmót

Soroptimistaklúbbs Reykjavíkur

Golfklúbbnum Oddi – Urriðavelli

laugardaginn 5. júní 2010

Takið daginn frá – skráning á www.golf.is

Glæsileg verðlaun:

Þátttakendur fá fyrsta flokks teiggjafir og létta hressingu

Fimm efstu sætin í tveimur forgjafarflokkum

Lengsta teighögg

Næst holu á öllum par þrjú brautum

Dregið úr skorkortum

Fjöldi annarra verðlauna

1. verðlaun í báðum forgjafarflokkum: Flugfar til Evrópu

Eftirtaldir gefa önnur verðlaun: Ásta créative clothes, Blue Lagoon spa Reykjavík, ELM design, Fangar á Litla Hrauni, Gallerí 21, Gísli B. Björnsson, Guðný Hafsteinsdóttir, GUST, Hreyfing, Kogga, Krista/Quest, Magdalena Margrét, N1, The Pier, Opna bókaútgáfa, Óm-snyrtivörur, Örninn-golfverslun.

Soroptimistar eru hjálpar- og friðarsamtök kvenna á heimsvísu (nánar á soroptimist.is). Reykjavíkurklúbbur er elsti klúbburinn á Íslandi og er golfmótið haldið í tilefni af fimmtíu ára afmæli hans. Allur ágóði rennur til styrktar sumarnámskeiðum einhverfra barna sem haldin eru af Umsjónarfélagi einhverfra og Menntavísindasviði Háskóla Íslands.

Skoðanir (0)

2010-05-21 10:52:08

Opið hús hjá Æfingastöðinni

OPIÐ HÚS – KOMIÐ OG UPPLIFIÐ! 

Við á Æfingastöðinni ætlum að opna dyrnar upp á gátt laugardaginn 29. maí frá kl. 13-16. Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin áHáaleitisbraut 13.

Komið og upplifið!

 ·       Leikir,  þrautabrautir og tækjasalur·       Ýmis hjálpartæki ·       Myndir úr starfinu·       Leikhópurinn Lotta skemmtir kl.13.15·       Grillaðar pylsur og svali
Kynningar og fræðsla um: 
·       Sjúkra- og iðjuþjálfun á Æfingastöðinni·       Iðjuþjálfun í Hafnarfirði·       Þjálfun í daglegu umhverfi ·       Hópþjálfun ·       Sjúkraþjálfun á hestbaki ·       Fjölskyldumiðaða þjónustu
  Skoðanir (0)

2010-05-21 10:52:58

Autism-Europe ráðstefnan 2010 Umsjónarfélag einhverfra hefur ákveðið að styrkja þá félagsmenn sem hafa áhuga á að sækja Autism-Europe ráðstefnuna á Sikiley í október.  Skuldlausir félagar geta fengið styrk að upphæð kr. 40.000.- frá félaginu.  Afrit af skráningu og flugmiða þarf að fylgja umsókninni.  Heimasíða ráðstefnunnar er: www.autismeurope2010.org Skoðanir (0)

2010-04-30 11:38:04

HÓPASTARF Í MAÍ

Reykjavík:

Hópur foreldra eldri barna með einhverfu í grunnskólum/framhaldsskólum mun hittast  þriðjudagskvöldið 4. maí klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13. 2. hæð.

Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu í grunnskólum/framhaldsskólum mun hittast   miðvikudagskvöldið 5. maí klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.

Hópur foreldra barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast fimmtudagskvöldið 6. maí klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.  

Út úr skelinni, hópur eldri einstaklinga með ódæmigerða einhverfu og Aspergersheilkenni (18 ára og eldri) hittist næst sunnudaginn 9. maí, klukkan 15:15-17.15, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð.    Allir velkomnir.

Akureyri: Foreldrahópur á Akureyri ætlar að hittast mánudaginn 10. maí klukkan 20:00 í húsnæði Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg.                 Kveðja,  Elín M. Lýðsdóttir, elin@hugurax.is

Reykjanes: Hópur foreldra á Reykjanesi mun hittast fimmtudagskvöldið 6. maí kl. 20:30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ.  Gyða M. Arnmundsdóttir sérkennslufulltrúi Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar kemur á fundinn og kynnir teymisvinnu og mikilvægi hennar til að þjónusta við barnið gangi sem best fyrir sig.  Vonumst til að sjá sem flesta.  Kveðja, Jóhanna María, johannamaria@simnet.is,  862-8209

Suðurland: Foreldrar á Suðurlandi ætla að hittast fimmtudagskvöldið 6. maí klukkan 19:30-21:30, í húsnæði Svæðisskrifsstofu um málefni fatlaðra, Eyravegi 25, Selfossi.  Arna Ír Gunnarsdóttir kemur og ræðir við okkur um áhrif þess að málefni fatlaðra færast yfir til sveitarfélaga.  Kveðja,  Aðalbjörg Skúladóttir, abba@verksud.is

Foreldrahóparnir eru svo farnir í sumarleyfi fram í september.

Skoðanir (0)

2010-04-21 15:17:24

AÐALFUNDUR

Aðalfundur

Umsjónarfélags einhverfra 

verður haldinn þriðjudaginn 27. apríl 2010, klukkan 20:00. 

Fundarstaður:  Háaleitisbraut 13, salur á 4. hæð.  

Fundarefni:

Venjuleg aðalfundarstörf.

Önnur mál. 

Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og kynna sér starfsemi félagsins, taka sameiginlegar ákvarðanir um þau málefni, sem eru framundan hjá félaginu. Það þarf sífellt að vera vakandi vegna velferðarmála einhverfra, og því áríðandi, að sem flestir taki þátt í félagsstarfinu.   

                                         Stjórnin.

Skoðanir (0)

Næstu 10