Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík | Sími: 562-1590
2009-09-30 10:37:36
Haustið 2008 komu 7 foreldrar barna með einhverfurófsröskun saman og stofnuðu félagið Einhug. Þessir foreldrar höfðu verið að hittast í rúmt ár og sáu fram á að það væri greinileg þörf fyrir virkt foreldrafélag í Vestmannaeyjum. Hér er því um hreinræktuð grasrótarsamtök að ræða. Flest okkar eru félagsmenn í Umsjónarfélagi einhverfra en af landfræðilegum orsökum finnst okkur við þurfa á sérstökum félagsskap að halda.
Börnum með einhverfurófsröskun hefur fjölgað í Vestmannaeyjum eins og annars staðar og telst okkur til að þau séu talsvert á annan tuginn. Bak við hvert barn er síðan stór hópur aðstandenda, foreldrar, systkini, afar, ömmur, frændur og frænkur. Félagið Einhugur hefur fengið mjög góðar móttökur í Vestmannaeyjum og hafa okkur m.a. borist áheit og fjárframlög sem við viljum gjarnan gera góða hluti úr.
Í lögum félagsins segir m.a.
3.gr.
Tilgangur og markmið félagsins er að gæta hagsmuna barna með einhverfurófsröskun í Vestmannaeyjum og fjölskyldna þeirra.
4. gr.
Tilgangi félagsins skal náð með eftirfarandi hætti:
a) Stuðla að fræðslu og aukinni þekkingu á málefnum barna á einhverfurófinu meðal almennings, stjórnmálamanna og fagfólks
b) Styrkja og hvetja foreldra og aðstandendur til að afla sér fræðslu og þekkingar á málefninu.
c) Hlutast til um að keypt verði námsgögn og kennslutæki fyrir börnin, þar á meðal til notkunar í leikskóla og skóla.
d) Vera stuðningur fyrir foreldra, sérstaklega foreldra nýgreindra barna á einhverfurófinu, deila reynslu og þekkingu og veita stuðning við það áfall sem greining reynist oft aðstandendum barna
e) Koma fram sem hagsmunagæsluaðili fyrir börn á einhverfurófinu og fjölskyldur þeirra gagnvart bæjaryfirvöldum, skólakerfi, stjórnmálamönnum, almenningi og fjölmiðlum.
Ef þig langar til að gerast aðildarfélagi, styrktarfélagi, nú eða bara að forvitnast og fræðast meira endilega hafðu samband við okkur. Allar upplýsingar eru á heimasíðunni okkar