Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík | Sími: 562-1590


Aðalvalmynd

Ýmislegt

Leturstærð:
Stækka letur Normal letur Minnka letur

Innskrá

















Fréttir

2012-02-03 10:46:00

FORELDRAHÓPUR Á SUÐURLANDI

Foreldrar barna á einhverfurófi á Suðurlandi ætla að hittast fimmtudagskvöldið 9. Febrúar klukkan 20-21:30, í Smiðjunni, Austurvegi 36, Selfossi, Sjóvá er við hliðina.  Nánari upplýsingar veitir Þórunn Ósk, netfangið er thorunnosk@simnet.is .   

Allir eru velkomnir og ekki þarf að tilkynna mætingu.

Skoðanir (0)

2012-02-03 10:43:28

FÓTBOLTI FYRIR STELPUR

 

Fréttatilkynning

Íþróttafélagið Ösp og Knattspyrnufélagið Víkingur bjóða í vetur upp á knattspyrnunámskeið fyrir þroskahamlaðar stelpur á öllum aldri, vinkonur þeirra, skólafélaga og aðra sem áhuga hafa.

Námskeiðið byggir á hugmyndafræði Unified football þar sem fatlaðir og ófatlaðir æfa og keppa saman í liði. Knattspyrnustelpur úr Víkingi hafa

tekið þátt í verkefninu í haust en stefnt er að því að senda kvennalið til þátttöku í Unified football á leikum Special Olympics í framtíðinni.

Æfingar eru fyrir alla aldurshópa og fara fram

á laugardögum kl. 14:45 – 16:00 í íþróttahúsi Hlíðarskóla.

Markmið æfinganna eru:

Bæta grunntækni í knattspyrnu

Stuðla að heilsusamlegri hreyfingu

Stuðla að góðum félagsskap

Auka áhuga á knattspynu og hreyfingu almennt

Stuðla að jákvæðri upplifun af knattspyrnu og hreyfingu

Nánari upplýsingar veitir Darri McMahon í síma 8678049 eða

Ólafur Ólafsson formaður Aspar. Sími 8998164

Netfang ospin@ospin.is

ALLIR GETA VERIÐ MEÐ

ÞAÐ VERÐUR TEKIÐ VEL Á MÓTI ÞÉR, HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG

Skoðanir (0)

2012-01-29 18:47:48

Foreldrahópar í febrúar

Akranes

Foreldrahópurinn á Akranesi og nágrenni hittist miðvikudagskvöldið 1. febrúar klukkan 20:30 í Fjöliðjunni við Dalbraut á Akranesi. Upplýsingar í síma 4312177 og 6152177.

Akureyri

Foreldrahópur á Akureyri ætlar að hittast mánudagskvöldið 13. febrúar klukkan 20.00  í húsnæði Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg.

Reykjanes:

Hópur foreldra á Reykjanesi mun hittast fimmtudagskvöldið 2. febrúar kl. 20:30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ.  Vonumst til að sjá sem flesta.  Kveðja, Jóhanna María, johannamaria@simnet.is   862-8209.

Reykjavík:

Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu mun hittast   miðvikudagskvöldið 1. febrúar klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, í fundarsal á 4. hæð.

Hópur foreldra barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast miðvikudagskvöldið 1. febrúar klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, fundarherbergi 4. hæð.     

Vestmannaeyjar     

Einhugur, foreldrar Eyjabarna á einhverfurófi, ætla að hittast  þriðjudaginn 7. febrúar. Staðsetning og tími auglýst síðar á heimasíðunni http://einhugur.blog.is/ , og á facebook síðunni Einhugur foreldrafélag.  

Allir eru velkomnir í hópastarfið.  Ekki þarf að tilkynna þátttöku.

Skoðanir (0)

2012-01-11 13:16:34

Foreldrahópur Akureyri

Akureyri

Foreldrahópur á Akureyri ætlar að hittast mánudaginn 16. janúar klukkan 20.00  í húsnæði Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg.

Skoðanir (0)

2012-01-06 10:57:52

Foreldrahópar Akranesi og Vestmannaeyjum

Akranes

Foreldrahópur einhverfra barna á Akranesi mun hittast miðvikudagskvöldið 11. janúar  í Fjöliðjunni Dalbraut Akranesi. Við hittumst klukkan 20:30. Nánari upplýsingar veitir Elsa Lára í síma 615-2177 eða á netfangið elsa.lara.arnardottir@akranes.is.

Vestmannaeyjar     

Einhugur, foreldrar Eyjabarna á einhverfurófi, ætla að hittast heima hjá formanni, Guðrúnu, að Búhamri 32,  þriðjudaginn 10. janúar klukkan 20:00. Sjá nánar á heimasíðunni http://einhugur.blog.is/ , og á facebook síðunni Einhugur foreldrafélag.

Allir eru velkomnir í hópastarfið.  Ekki þarf að tilkynna þátttöku.

Skoðanir (0)

2012-01-02 14:07:09

Foreldrahópar Reykjavík og Reykjanesi

Reykjavík:

Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu mun hittast   miðvikudagskvöldið 4. janúar klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, í fundarsal á 4. hæð.

Hópur foreldra barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast miðvikudagskvöldið 4. janúar klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, fundarherbergi 4. hæð.     

Reykjanes:

Hópur foreldra á Reykjanesi mun hittast fimmtudagskvöldið 5. janúar kl. 20:30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ.  Vonumst til að sjá sem flesta.  Kveðja, Jóhanna María, johannamaria@simnet.is   862-8209.

Allir eru velkomnir í hópastarfið.  Ekki þarf að tilkynna þátttöku.

Skoðanir (0)

2011-12-23 12:14:23

Skrifstofan lokuð milli jóla og nýárs Skrifstofa Umsjónarfélags einhverfra verður lokuð milli jóla og nýárs en opnar aftur á nýju ári, 4. janúar.  Ef þörf er á er hægt að hafa samband við Sigrúnu í síma 897 2682 eða senda tölvupóst á netfangið einhverf@vortex.is Skoðanir (0)

2011-12-16 12:00:24

Samfélagsstyrkir Landsbankans

25. nóvember 2011 - Fréttir og tilkynningar

Landsbankinn veitir 15 milljónir í samfélagsstyrki

Landsbankinn veitti í dag 15 milljónir króna í samfélagsstyrki í fyrsta sinn úr nýjum Samfélagssjóði bankans. Veittir voru þrjátíu og fimm styrkir, fimm styrkir að upphæð 1 milljón króna hver, tíu styrkir að fjárhæð 500 þúsund krónur og tuttugu styrkir að fjárhæð 250 þúsund krónur. Ríflega 500 umsóknir bárust um styrki úr Samfélagssjóði Landsbankans. Umsjónarfélag einhverfra hlaut 1 milljón króna í styrk vegna sumarnámskeiða félagsins.

Samfélagsstyrkjunum er ætlað að styðja við samfélagsmál af ýmsum toga, t.d. verkefni mannúðarsamtaka og líknarfélaga, verkefni á sviði menntamála, rannsókna og vísinda, verkefni á sviði menningar og lista, forvarnar- og æskulýðsstarf og sértæka útgáfustarfsemi. Fyrirhugað er að úthluta samfélagsstyrkjum árlega.

 

Skoðanir (0)

2011-12-14 22:09:24

Jólafundur Einhugs foreldrafélags Eyjabarna á einhverfurófi 17. desember

V í Vestmannaeyjum ætlum að hafa jólafund á Café Varmó, laugardaginn 17. des. 2011 kl. 13.  Við erum svo með mánaðarlega fundi, stefnum á fyrsta þriðjudag hvers mánaðar en nánari upplýsingar verða á facebook síðunni okkar (Einhugur foreldrafélag)  og á einhugur.blog.is  

     Bestu kveðjur Guðrún J

Skoðanir (0)

2011-12-02 10:54:38

Jólafundur Umsjónarfélags einhverfra

Jólafundur Umsjónarfélag einhverfra

verður haldinn miðvikudaginn 7. desember klukkan 20:00-22:00 að Háaleitisbraut 13. 4. hæð.  Þetta er spjallfundur með léttu yfirbragði, piparkökum, gosi og konfekti.  Fundurinn kemur í stað foreldrahópa í desember.  Á fundinum ætlum við að sýna stuttmyndir sem unglingarnir okkar gerðu á sumarnámskeiðum félagsins.  

                                               Fundurinn er öllum opinn. Skoðanir (0)

Næstu 10